Varnarmálaráðherra Evrópusambandsins, Andrius Kubilius, lýsti því yfir í ræðu á ráðstefnu í Svíþjóð í janúar síðastliðnum að sambandið þyrfti að koma sér upp 100 þúsund manna fastaher. Viðbrögð hérlendra Evrópusambandsinna hafa verið þau að engu skipti hvað hann segði enda þyrfti samþykki allra ríkja Evrópusambandsins til þess.
Forsætisráðherra Hollands, Rob Jetten, staðfesti í umræðum í neðri deild hollenzka þingsins um miðjan júní að afstaða þarlendra stjórnvalda væri sú að sameiginleg sjávarútvegsstefna Evrópusambandsins væri óumsemjanleg og að umsóknarríki að sambandinu þyrftu að gangast undir hana vildu þau annað borð ganga í sambandið.
Viðbrögð hérlendra Evrópusambandssinna voru þau að afstaða hollenzka forsætisráðherranns og ríkisstjórnar hans skipti engu máli enda hefði Costas Kadis, sjávarútvegsráðherra Evrópusambandsins, sagt aðspurður í viðtali við Financial Times í apríl að hugsanlega gæti Ísland fengið einhvers konar undanþágur í sjávarútvegsmálum.
Hins vegar geta ný ríki ekki gengið í Evrópusambandið nema með samþykki allra ríkja þess. Ekkert ríki sambandsins hefur sagt að Ísland gæti fengið varanlegar undanþágur frá valdi þess yfir sjávarútvegsmálum. Á sama tíma hafa ríkisstjórnir ófárra ríkja innan Evrópusambandsins lýst yfir stuðningi við það að til verði Evrópusambandsher.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Andrius Kubilius, varnarmálaráðherra Evrópusambandsins. Eigandi: © European Union, 2025, licensed under CC BY 4.0)
