„Ný aðildarríki fá ekki slíkar undanþágur“

Komið hefur margsinnis fram í máli forystumanna Evrópusambandsins að varanlegar undanþágur frá valdi sambandsins yfir tilteknum málaflokkum (e. opt-outs) séu ekki í boði fyrir ný ríki. Enda aldrei verið í boði fyrir þau. Hvorki í sjávarútvegsmálum né öðrum málaflokkum. Einu ríkin sem fengið hafa slíkar undanþágur hafa þegar verið í Evrópusambandinu og samþykki þeirra þurft til þess að samþykkja nýja sáttmála þess. Eins og Danmörk fékk á sínum tíma frá evrunni.

Meira að segja Andrés Pétursson, fyrrverandi formaður Evrópusamtakanna, forvera Evrópuhreyfingarinnar, benti á það í grein á Vísi fyrr á árinu að slíkar undanþágur væru ekki í boði lengur. „Við þurfum sérlausnir – ekki undanþágur. Munurinn skiptir öllu máli. Svokallað opt-out þýðir að ríki sleppir heilum málaflokkum í regluverki ESB. Danir fengu slíkar undanþágur á sínum tíma, til dæmis frá evrunni. En þetta kerfi er lokað. Ný aðildarríki fá ekki slíkar undanþágur – punktur.“

Hitt er svo annað mál að eina leiðin til þess að ríki geti haldið fullum yfirráðum yfir tilteknum málum innan Evrópusambandsins eru varanlegar undanþágur frá yfirþjóðlegu valdi þess. Sérstaklega er kveðið á um óskipt vald sambandsins yfir líffræðilegum auðlindum sjávar í Lissabon-sáttmálanum, grundvallarlöggjöf þess. Svonefndar sérlausnir, eða sérstakar aðlaganir eins og Evrópusambandið kallar þær gjarnan, breyta engu um það að valdið fer til sambandsins.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Frá Stykkishólmi. Eigandi: Domenico Convertini – Creative Commons Attribution 2.0 Generic)