Tollar á Evrópusambandið en ekki Ísland

Tilkynnt var um nýja tolla Bandaríkjanna í dag sem verða lagðir á vörur frá um 85 ríkjum. Þar á meðal frá öllum 27 ríkjum Evrópusambandsins. En ekki á Ísland. Tollarnir verða á bilinu 10-12,5% og koma í stað tímabundins 10% tolls á innflutning frá öllum ríkjum heims sem rennur út á morgun. Þetta er óneitanlega áhugavert í ljósi fullyrðinga hérlendra Evrópusambandsinna að Ísland þurfi að ganga í sambandið til þess að geta varið hagsmuni landsins í tollastríðum.

Hins vegar er þetta ekki í fyrsta sinn sem Ísland stendur betur að vígi í þessum efnum. Þannig lögðu Bandaríkin upphaflega 10% grunntollur á Ísland sem síðan var færður upp í 15%. Hins vegar var lagður 20% tollur á Evrópusambandið þegar Ísland fékk á sig 10%. Donald Trump Bandaríkjaforseti hótaði sambandinu síðan 50% tolli en færði þá tölu svo niður í 30%. Í kjölfar viðskiptasamnings á milli Bandaríkjanna og Evrópusambandsins, endaði tollurinn í 15%.

Til þess að fá 15% toll, sama toll og Ísland, þurfti Evrópusambandið til að mynda að samþykkja stóraukin kaup ríkja þess á orku og vopnum frá Bandaríkjunum og fella niður tolla á tilteknar bandarískar vörur. Forystumenn sambandsins féllu nánast á kné og samþykktu meira eða minna allt sem Trump fór fram á. Á sama tíma var tollurinn á Ísland án nokkurra slíkra skilyrða. Einmitt, þvílík vörn sem felst ljóslega í því að vera í Evrópusambandinu í þessum efnum!

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Íslenzkir peningar. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)