„Ég tók 90 milljóna króna lán hér í Danmörku fyrir fimm árum síðan og ég borga 80 þúsund krónur íslenzkar á mánuði af því,“ sagði Halldór Jörgen Olesen í myndskeiði sem hann birti á samfélagsmiðlum í fyrradag. Talsvert var rætt um þetta í umræðum um myndskeiðið og var bent á það að ef satt reyndist tæki 1.125 afborgarnir að greiða eingöngu niður höfuðstól lánsins fyrir utan vextina. Ef um mánaðarlegar afborganir væri að ræða tæki rúm 93 ár að greiða það til baka.
Halldór fékkst ekki til að útskýra hvernig þessar tölur stæðust og svaraði þeim sem bentu á þetta einungis með eftirfarandi orðum: „Það er svo merkilegt að flestir Íslendingar skilja ekki fjölda og fjölbreytileika lánaframboðs í ESB. Aðallega vegna þess að þeir eru svo vondu vanir.“ Inntur áfram eftir útskýringum á því hvernig þetta gengi eiginlega upp sem og til hversu margra ára lánið hefði verið tekið svaraði hann: „Það geri ég í beinni ef þið lofið að velja JÁ þann 29. ágúst.“
Félagi minn taldi víst að skýringin væri sú að Halldór hefði tekið sérstakt lán sem í boði var í Danmörku á sínum tíma og var hugsað sem ákveðið neyðarúrræði vegna kórónuveirufaraldursins sem einungis þyrfti að greiða vexti af en ekkert inn á höfuðstólinn fyrstu árin og með neikvæðum vöxtum á köflum. Þegar því tímabili lyki margfölduðust hins vegar afborganirnar. Með öðrum orðum að mörgu leyti ekki ósvipað kúlulánum og í raun mun verra en verðtryggð lán.
Halldór viðurkenndi síðan í samtali við mig að sú hefði verið raunin. Lánið hefði verið tekið árið 2021 með 0,18% neikvæðum vöxtum vegna faraldursins og aðeins þurft að greiða af því vexti. Þegar ég spurði hann hvort hann teldi ekki að rétt hefði verið að upplýsa fólk um að ekki væri um að ræða venjubundið danskt fasteignalán og hvort hann teldi þessa framgöngu málefnalega sagðist hann ætla að upplýsa um það síðar en draga það „eins lengi og þetta fer í pirrurnar á ykkur.“
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Halldór Jörgen Olesen. Eigandi: Skjáskot af myndskeiðinu)
