Miðað við niðurstöður nýjustu skoðanakannana í Bretlandi er Brezki umbótaflokkurinn (Reform UK) með jafnmikið eða meira fylgi en Íhaldsflokkurinn. Samkvæmt þeirri nýjustu, sem unnin var af fyrirtækinu Opinium fyrir dagblaðið Observer, mælist Verkamannaflokkurinn með 28% fylgi, Brezki umbótaflokkurinn 27% og Íhaldsflokkurinn með 21%.
Miðað við könnunina hefur Brezki umbótaflokkurinn nær tvöfaldað fylgi sitt frá þingkosningunum síðasta sumar og aðallega á kostnað Verkamannaflokksins sem legið hefur undir miklu ámæli vegna bæði efnahagsmála og innflytjendamála. Ein könnun sem gerð var 22. janúar af fyrirtækinu Find Out Now sýndi Brezka umbótaflokkinn með mest fylgi.
Verkamannaflokkurinn er þannig ekki einn um að eiga í vandræðum en Íhaldsflokkurinn hlaut sína langverstu kosningu í þingkosningunum í júlí eða 24,4% en mælist í könnun Opinium með minna fylgi en það. Leiðtogaskipti flokksins í nóvember, þegar Kemi Badenoch tók við keflinu, virðist því ekki hafa verið sú lyftistöng sem vonazt var eftir.
Vegna kosningakerfis Bretlands, sem byggist upp á einmenningskjördæmum, skiptir þó mestu að ná flestum atkvæðum í sem flestum kjördæmum. Til dæmis hlaut Brezki umbótaflokkurinn meira fylgi á landsvísu en Frjálslyndir demókratar í síðustu kosningum, 14,7% á móti 12,5%, en hlaut þó aðeins fimm þingmenn en Frjálslyndir demókratar 72.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Tower Bridge í London. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)
