Stuðningur við Áslaugu á Samstöðinni?

Miðað við skrif Sigurjóns M. Egilssonar á vef sósíalísku útvarpsstöðvarinnar Samstöðvarinnar fyrr í vikunni verður ekki betur séð en að hann vilji sjá Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, þingmann Sjálfstæðisflokksins, sem næsta formann flokksins. Sigurjón, sem er bróðir sósíalistaforingjans Gunnars Smára Egilssonar, fer þannig afar jákvæðum orðum um Áslaugu en afskaplega gagnrýnum um aðra þá sem helzt hafa verið nefndir til sögunnar í þeim efnum.


Fram kemur í skrifum Sigurjóns að Guðlaugur Þór Þórðarson sé orðinn of gamall og geti fyrir vikið seint talizt boðberi nýrra tíma. Sigurjón gagnrýnir Guðrúnu Hafsteinsdóttur fyrir að að halda ekki fyrsta þingsæti Suðurkjördæmis en hún er annar þingmaður þess. Hann nefnir hins vegar ekki að Guðlaugur Þór fór úr fyrsta þingsæti Reykjavíkurkjördæmis norður niður í annað sætið og Áslaug úr fyrsta sæti Reykjavíkurkjördæmis suður niður í það þriðja.

Hvað boðbera nýrra tíma annars varðar snýst það fyrst og fremst um pólitískan aldur. Guðlaugur Þór hefur vissulega verið lengi í stjórnmálum og fyrir vikið ekkert nýjabrum. Það á hins vegar líka við um Áslaugu þó hún hafi ekki verið eins lengi í þeim. Hún var þannig ráðherra í fimm ár, stóran hluta þess tíma sem Sjálfstæðisflokkurinn var í stjórn með Vinstri grænum. Guðrún hefur verið rúm þrjú ár á þingi og var þar af eitt og hálft ráðherra en svo eftir var tekið.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Merki Sjálfstæðisflokksins. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)