Verðbólgan mældist 5,3% í júlí. Verði hún meiri en 4,7% í ágústmælingunni virkjast forsenduákvæði kjarasamninga og hægt að segja þeim upp. Aðilar vinnumarkaðarins hafa ítrekað varað við þessu undanfarna mánuði. Ríkisstjórnin hefur ekkert gert til þess að koma í veg fyrir að samningunum verði sagt upp. Fyrir utan tímabundna skattalækkun á eldsneyti í vor eftir mikill þrýsting í þjóðfélaginu sem þó var dropi í hafið miðað við hækkanir hennar á ýmsum gjöldum í byrjun ársins. Þvert á móti hefur hún ítrekað stuðlað að aukinni verðbólgu með ákvörðunum sínum. Nú síðast var tilkynnt um áform hennar um að hækka ými gjöld í heilbrigðiskerfinu. Þar á meðal komugjöld á heilsugæzlustöðvar um 100%. Sérfræðingar hafa bent á að ef ekki hefði komið til opinberra hækkana í ársbyrjun væru kjarasamningarnir að öllum líkindum ekki í uppnámi.
Hvað skýrir aðgerðaleysi ríkisstjórnarinnar og þvert á móti ákvarðanir hennar sem stuðlað hafa að aukinni verðbólgu? Höfum í huga að verðtryggð lán taka mið af tólf mánaða verðbólgu og inni í henni eru enn og verða út árið hækkanir stjórnvalda í byrjun þess og eftir það. Vanhæfni er ekki nægjanleg skýring þó hún sé vafalaust hluti hennar. Þetta er svo langt út fyrir það. Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, lét eftirfarandi orð falla í hlaðvarpinu Chess After Dark 27. ágúst 2024: „Það sem gerist svo ítrekað með Evrópusambandið er þegar það gengur illa, þegar það er komin verðbólga, þegar það eru háir vextir, þá byrjar fólk að vilja ganga inn í Evrópusambandið.“ Fleiri forystumenn ríkisstjórnarinnar eru vitanlega meðvitaðir um þetta. Þar á meðal og ekki sízt Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra.
Fyrir vikið er farið að ræða þetta víða í þjóðfélaginu. Eðlilega. Þar á meðal í atvinnulífinu. „Við erum í skrítinni stöðu. Við erum með ríkisstjórn sem vill troða okkur í ESB og maður hreinlega spyr sig hvort ríkisstjórnin sé að reyna að hafa efnahagsmálin hér heima í algjörum ólestri til þess að auka líkurnar á að fólk velji að fara í ESB. Við þurfum að fara rífa okkur í gang hérna heima og taka ábyrgð á okkur sjálf. Það eru engar töfralausnir, og ESB er svo sannarlega ekki töfralausn heldur efnahagslega hnignandi samband eins og allir sjá sem kynna sér málin,“ sagði Daði Kristjánsson fjármálahagfræðingur til að mynda fyrr á árinu á Facebook-síðu sinni í kjölfar síðustu stýrivextahækkunar Seðlabankans. Fleiri í atvinnulífinu hafa vakið máls á þessu eins og til að mynda Stefán Guðmundsson, framkvæmdastjóri hvalaskoðunarfyrirtækisins Gentle Giants.
Ég vildi lengi vel alls ekki trúa því að ríkisstjórnin gæti lagzt svona lágt til þess að reyna að fá landsmenn til þess að samþykkja í þjóðaratkvæðinu í lok ágúst að hefja inngöngu í Evrópusambandið með tilheyrandi fullri aðlögun að því samhliða viðræðum um inngöngu í það. En sífellt fleira hefur hins vegar bent til þess að svo sé í raun. Hvað annað getur skýrt framgöngu ríkisstjórnarinnar í þessum efnum? Við erum bæði með forsætisráðherra og fjármálaráðherra sem eru sprenglærðir hagfræðingar. Eiga allavega að heita það. Hvers vegna hefur ríkisstjórnin daufheyrzt til að mynda við ítrekuðum varnaðarorðum forystumanna verkalýðshreyfingarinnar um að nánast öruggt sé að forsendur kjarasamninga muni bresta vegna verðbólgunnar. Hvernig dettur stjórninni í hug að halda þess í stað áfram að kynda undir henni?
Mikill pólitískur hvati er einfaldlega fyrir hendi fyrir ríkisstjórnina að staða efnahagsmálanna versni og batni ekki. Vert er að hafa í huga í því sambandi að innganga í Evrópusambandið er í reynd eina eiginlega stefnumál Viðreisnar. Flokkurinn var beinlínis stofnaður í kringum það á sínum tíma. Öll önnur stefnumál hans taka mið af því með einum eða öðrum hætti. Öllu virðist hreinlega fórnandi fyrir það. Verði niðurstaða þjóðaratkvæðisins í lok ágúst að stefnt verði að inngöngu í sambandið verður pólitíski hvatinn áfram til staðar enda þarf þá að tryggja að sama skapi að samningur verði samþykktur eftir einhver ár sem yrði enn meiri brekka fyrir ríkisstjórnina. Bætt staða efnahagslífsins myndi aðeins minnka líkurnar á því. Fyrir vikið er eina leiðin til þess að verðbólga fari mögulega að minnka að segja nei í þjóðaratkvæðinu 29. ágúst.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Birtist áður í Morgunblaðinu 11. ágúst 2026)
(Ljósmynd: Oddvitar ríkisstjórnarflokkanna. Eigandi: Stjórnarráðið)
