„Fullyrðingar um yfirburðavægi evrunnar í íslenskum utanríkisviðskiptum eiga sér ekki stoð,“ segir meðal annars í niðurstöðum nýrrar skýrslu um utanríkisviðskipti Íslands sem Rannsóknarmiðstöð um samfélags- og efnahagsmál (RSE) hefur gefið út. Þar segir að utanríkisviðskipti Íslands séu að mestu gerð upp í dollurum en ekki evrum. Þá er enn fremur bent á þá staðreynd að gjaldeyrisáhætta útflutningstekna gagnvart dollaranum hyrfi ekki með upptöku evru.
Fram kemur aukinheldur að hlutur Evrópusambandsins í heildarútflutningi Íslands sé ekki í kringum 70% eins og oft hafi verið haldið fram heldur um helmingur. Skráður vöruútflutningur til ríkja þess hafi þannig verið á bilinu 61–66,5% á árunum 2015-2025 og í þjónustu 37,5%. Þjónustuútflutningur sé orðinn stærri en vöruútflutningur. Að honum meðtöldum séu Bandaríkin stærsta viðskiptaland Íslands og nær á pari við ríki sambandsins í þjónustuviðskiptum.
Talsmenn inngöngu í Evrópusambandið hafa notað það sem ein sín helztu rök að utanríkisviðskipti Íslands væru að langmestu leyti við ríki þess. Meðal þess sem leiðrétt er fyrir í skýrslunni eru vörur sem fluttar eru fyrst í stað til Hollands, sem er sem kunnugt er innan sambandsins, vegna hinna stóru umskipunarhafna þar en enda að lokum annars staðar og þá ekki sízt utan þess. Holland er í þeim tilfellum aðeins milliliður en ekki endanlegur ákvörðunarstaður.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Þinghús Bandaríkjanna í Washington DC. Eigandi: Diego Delso)
