Tíðar heimsóknir evrópskra ráðherra til Íslands á undanförnum mánuðum á vegum Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra í aðdraganda þjóðaratkvæðisins um Evrópusambandið voru til umfjöllunar á fréttavefnum Euractiv fyrir helgi undir millifyrirsögninni „Einn á fætur öðrum“. Á sama tíma hafi Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra komið þeim skilaboðum til ráðamanna sambandsins á bak við tjöldin að afskipti þess væru óæskileg samkvæmt heimildum hans.
„Einungis á árinu 2026 hafa allavega sjö háttsettir evrópskir stjórnmálamenn heimsótt Ísland og hafa flestir þeirra hvatt opinberlega til þess að Ísland héldi áfram með aðildarferlið að ESB. Þar á meðal eru fulltrúar frá Spáni, Austurríki, Þýzkalandi og Slóvakíu auk Valerie Hayer, leiðtoga frjálslyndra á þingi sambandsins. Jean-Noël Barrot, utanríkisráðherra Frakklands, heimsótti Ísland í júlí og sagði við innlenda fjölmiðla að Ísland hefði „engu að tapa“ að samþykkja aðild.“
Haft er eftir embættismanni hjá Evrópusambandinu í fréttinni að engu að síður séu háttsettir embættismenn á vegum sambandsins „að skoða leiðir til þess að hjálpa já-hliðinni án þess að styggja íslenzk stjórnvöld.“ Þegar fréttavefurinn hafði samband við ríkisstjórn Evrópusambandsins (framkvæmdastjórnina) fékkst það formlega svar að hún skipti sér aldrei af þingkosningum eða þjóðaratkvæðagreiðslum. Utanríkisráðuneyt Íslands hafi ekki viljað tjá sig um málið.
Fyrir jólin var samþykkt þingsályktun um Norðurslóðir á þingi Evrópusambandsins með miklum meirihluta greiddra atkvæða þar sem þingið hvatti aðrar stofnanir sambandsins til að beita sér í kosningabaráttunni í aðdraganda þjóðaratkvæðisins. Þegar Þorgerður var spurð út í málið fyrr á árinu, bæði af fjölmiðlum og á Alþingi, gerði hún lítið úr því en þær Kristrún virðast allavega hreint ekki á sömu blaðsíðu varðandi afskipti af þjóðaratkvæðinu af hálfu Evrópusambandsins.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Höfuðstöðvar ríkisstjórnar Evrópusambandsins. Eigandi: © European Union, 2025, CC BY 4.0)
