Mikil og vaxandi óánægja hefur verið innan Viðreisnar undanfarna mánuði með þátttökuleysi Kristrúnar Frostadóttur, forsætisráðherra og formanns Samfylkingarinnar, í kosningabaráttunni í sumar í aðdraganda þjóðaratkvæðisins um Evrópusambandið. Kristrún hefur fyrir vikið sætt miklum þrýstingi að beita sér þrátt fyrir samkomulagið sem hún gerði við Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra og formann Viðreisnar, um að þjóðaratkvæðinu yrði flýtt gegn því að hún myndi ekki þurfa að taka þátt í umræðunni. Kristrún hefur nú endanlega látið undan þrýstingnum.
Viðtal brezka hlaðvarpsins The Rest is Politics við Kristrúnu nýverið var liður í uppgjöf hennar og fyrirhuguð fundaherferð hennar um landið, undir þeim formerkjum að hún ætli að hlusta á landann, annar. Tekið var enda eftir fögnuði Þorgerðar á samfélagsmiðlum vegna viðtalsins. Hins vegar glitti enn í vantrú Kristrúnar á verkefninu þegar hún ræddi til dæmis um það að umsóknarferlið, yrði samþykkt að hefja það á nýjan leik, hmyndi þýða mikið álag á stjórnsýsluna og taka frá því súrefni eins og hún kaus að orða það. Fleira var til marks um það að hún hefði enn miklar efasemdir um þá vegferð.
Fyrir þrýstingnum á Kristrúnu er einföld ástæða. Þegar Þorgerður féllst á það að Kristrún gæti haldið sig til hlés í umræðunni var hún vongóð um að hafa betur í þjóðaratkvæðinu. Þær vonir hafa hins vegar jafnt og þétt minnkað. Þekkt er þegar hún lét eftirfarandi orð falla í samtali við Euronews 19. marz: „Þetta verður ekki auðveld vegferð en að lokum verður maður að treysta þjóðinni og trúa á hana. Þetta er frekar jákvætt núna. Niðurstaðan gæti verið jákvæð núna, í dag ef við myndum kjósa. Á hinn bóginn… þú veizt…“ og skipti svo um umræðuefni. Síðan hefur sífellt harnað á dalnum í þeim efnum.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra, Ursula von der Leyen, forsætisráðherra Evrópusambandsins, og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. Eigandi: © European Union, 2025, licensed under CC BY 4.0)
