Fleiri Norðmenn eru andvígir inngöngu í Evrópusambandið en hlynntir eins og fyrri daginn samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar sem gerð var þar í landi af fyrirtækinu Opinion fyrir vefsíðuna Altinget eða 49% gegn 37%. Sé aðeins miðað við þá sem taka afstöðu með eða á móti vilja 57% ekki ganga í sambandið á meðan 43% vilja það.
„Við þurfum nú að beina orkunni að því að standa vörð um norska hagsmuni. Ekki að eyða henni í langt, krefjandi umsóknarferli [að Evrópusambandinu] sem hætta er á að sundri okkur,“ sagði Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs og leiðtogi Verkamannaflokksins, í ræðu sinni á landsfundi flokksins á síðasta ári. Málið væri ekki á dagskrá.
Mikill meirihluti þingmanna á norska Stórþinginu hafnaði í marz þingsályktunartillögu þingmanna Venstre, systurflokks Viðreisnar, um að ríkisstjórnin hæfi athugun á mögulegri inngöngu Noregs í Evrópusambandið. Þingsályktunartillögunni var hafnað með 78 atkvæðum gegn 21. Þá var öðrum ályktunum í þeim anda að sama skapi hafnað.
Fleiri hafa verið andvígir inngöngu í Evrópusambandið í öllum könnunum sem birtar hafa verið í Noregi frá því á fyrrihluta árins 2005 eða í meira en tvo áratugi. Hér á landi var meirihluti í öllum birtum könnunum frá 2009-2022. Það þurfti innrás rússneska hersins í Úkraínu til þess að breyta því um tíma. Frá upphafi árs 2025 hefur sú verið raunin aftur.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Norskir fánar fyrir utan konungshöllina í Ósló, höfuðborg Noregs. Eigandi: Maxxii)
