Fjölmörg dæmi eru um það að ráðherrar í ríkisstjórnum umsóknarríkja að Evrópusambandinu hafi í kjölfar inngöngunnar í það tekið sæti í ríkisstjórn sambandsins (framkvæmdastjórninni). Ekki sízt utanríkis- eða Evrópuráðherrar. Jafnvel ráðherrar sem verið hafa aðalsamningamenn viðkomandi ríkja í viðræðunum við Evrópusambandið. Dæmin eru svo mörg að í raun hefur verið um reglu að ræða. Undantekning er ef um hefur verið að ræða einstaklinga sem hafa ekki áður verið ráðherrar.
Vert er að árétta það áður en lengra er haldið að þó ríki Evrópusambandsins tilnefni hvert einn einstakling í ríkisstjórn þess eru þeir ekki fulltrúar þeirra heldur aðeins embættismenn sambandsins enda óheimilt að draga taum heimalanda sinna. Ólíkt því sem hérlendir Evrópusambandssinnar halda gjarnan fram. Þó íslenzkur ríkissborgari ætti sæti í ríkisstjórn sambandsins hefði hann ekki það hlutverk með höndum að gæta hagsmuna íslenzku þjóðarinnar heldur aðeins hagsmuna þess.
Förum rúm 30 ár aftur í tímann. Svíþjóð, Finnland og Austurríki gengu formlega í Evrópusambandið 1. janúar 1995. Norðmenn afþökkuðu hins vegar inngöngu í sambandið í þjóðaratkvæði. Í ríkisstjórn Evrópusambandsins sem tók við síðar í þeim mánuði tilnefndu ríkin þrjú þau Anitu Gradin, sem verið hafði utanríkisviðskiptaráðherra Svíþjóðar, Erkki Liikanen, fyrrverandi fjármálaráðherra Finnlands, og Franz Fischler sem hafði stuttu áður verið landbúnaðarráðherra Austurríkis.
Fóru beint í þjónustu ESB
Tíu ríki í Austur- og Suður-Evrópu gengu í Evrópusambandið 1. maí árið 2004. Þar var það sama uppi á teningnum. Siim Kallas tók sæti í ríkisstjórn sambandsins í kjölfarið tilnefndur af Eistlandi en hann var forsætisráðherra landsins 2002-2003. Sandra Kalniete, sem var utanríkisráðherra Lettlands á árunum 2002-2004, tók sæti í stjórninni tilnefnd af þarlendum stjórnvöldum. Þá var Dalia Grybauskaitė tilnefnd af stjórnvöldum í Litháen en hún var fjármálaráðherra landsins 2001-2004.
Vladimír Špidla tók sæti í ríkisstjórn Evrópusambandsins fyrir Tékkland, en hann var forsætisráðherra landsins 2002-2004, og Markos Kyprianou, fjármálaráðherra Kýpur 2003-2004, fyrir Kýpverja. Hið sama átti við um László Kovács, utanríkisráðherra Ungverjalands 2002-2004, Janez Potočnik, Evrópuráðherra Slóveníu 2002-2004, og Joe Borg, utanríkisráðherra Möltu 1999-2004, fyrir sín heimalönd. Tveir síðastnefndu fóru einnig fyrir viðræðunefnd landa sinna gagnvart sambandinu.
Tvö ríki gengu í Evrópusambandið 2007, Búlgaría og Rúmernía. Meglena Shtilianova Kuneva settist í ríkisstjórn sambandsins fyrir hönd Búlgaríu en hún var Evrópuráðherra landsins 2002-2006. Leonard Orban, Evrópuráðherra Rúmerníu 2004-2006, gerði slíkt hið sama fyrir heimaland sitt. Síðast gekk Króatía í Evrópusambandið 2013. Varaforsætisráðherra landsins 2011-2013, Neven Mimica, tók sæti í ríkisstjórn sambandsins. Öll voru þau aðalsamningamenn landa sinna við Brussel.
Framabraut fyrir ráðherra
Flestir sem taka sæti í ríkisstjórn Evrópusambandsins almennt eru þess utan fyrrverandi ráðherrar sem koma þá gjarnan beint úr ríkisstjórn viðkomandi ríkis. Ekki sízt utanríkisráðherrar. Með öðrum orðum er viðbúið að gengi Ísland í sambandið yrði það sama uppi á teningnum hér. Tiltekinn ráðherra í ríkisstjórn landsins færði sig um fet í ríkisstjórn Evópusambandsins eftir að formleg innganga þess hefði átt sér stað og framvegis væri um að ræða framabraut fyrir fyrrverandi ráðherra.
Við þetta bætist síðan óformlegur starfsmannakvóti ríkja Evrópusambandsins í stofnunum þess. Þar gætu ákveðnir útvaldir einstaklingar hér á landi með tiltekna háskólamenntun, ekki sízt í Evrópufræðum eins til dæmis undirritaður, og ýmsir háttsettir embættismenn og aðrir háttsettir opinberir starfsmenn komizt í vel launuð og lítt skattlögð störf hjá sambandinu með alls kyns fríðindum. Í tilfelli Ísland væri líklega um að ræða 200-300 slík störf miðað við íbúafjölda landsins.
Við Íslendingar myndum sjálfir greiða fyrir þessi störf eins og svo margt fleira innan Evrópusambandsins enda yrðum við alltaf nettógreiðendur í sjóði þess. Ólíkt flestum ríkjum sambandsins. Vert er að hafa einnig í huga að umræddir embættismenn og aðrir starfsmenn Evrópusambandsins sem hefðu íslenzkt ríkisfang yrðu ekki fulltrúar Íslands frekar en sá Íslendingur sem sæti í ríkisstjórn þess. Þeir yrðu einfaldlega starfsmenn sambandsins og hlutverk þeirra að gæta hagsmuna þess.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Birtist áður í Morgunblaðinu 18. ágúst 2026)
(Ljósmynd: Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Maros Sefcovic, viðskiptaráðherra Evrópusambandsins. Eigandi: © European Union, 2025, licensed under CC BY 4.0)
