Kosningastjóri SJÁ starfsmaður utanríkisráðuneytisins

Kolbeinn Arnarson, kosningastjóri samtakanna SJÁ sem tala fyrir því að samþykkt verði í þjóðaratkvæðinu í lok mánaðarins að setja stefnuna á inngöngu í Evrópusambandið, er starfsmaður utanríkisráðuneytisins en hann hefur starfað hjá ráðuneytinu frá árinu 2024. Kolbeinn var einnig kosningastjóri Samfylkingarinnar í Kópavogi í sveitarstjórnarkosningunum í vor.

Kolbeinn hefur starfað sem fulltrúi á skrifstofu utanríkisráðuneytisins sem heldur utan um þróunarsamvinnu og fékkst staðfest hjá ráðuneytinu að hann væri sem fyrr starfsmaður þess. Þá fengust þær upplýsingar frá ráðuneytinu að hann væri hvorki í leyfi né sumarleyfi. Einhverra hluta vegna er nafn hans þó ekki að finna á starfsmannalista ráðuneytisins á vef þess.

Vitanlega er opinberum starfsmönnum heimilt eins og öðrum að taka þátt í stjórnmálastarfi. Hins vegar vekur óhjákvæmilega athygli þegar starfsmaður utanríkisráðuneytisins stjórnar kosningabaráttu samtaka sem stofnuð voru til þess að berjast fyrir samþykkt stefnumáls ríkisstjórnarinnar sem er á borði ráðuneytisins og sérstakt hugðarefni utanríkisráðherra.

Es: Mbl.is fjallaði í dag um pistilinn en fréttinni var síðan breytt í það að Kolbeinn hafi starfað hjá utanríkisráðuneytinu en látið af störfum í maí. Væntanlega hefur ráðuneytið haft samband við miðilinn eða Kolbeinn sjálfur. Samkvæmt upplýsingum frá ráðuneytinu í dag var hann hins vegar enn skráður sem starfsmaður í kerfi þess þá en merktur fjarverandi.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Utanríkisráðuneytið. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)