Hversu mörgum samningaviðræðum skyldi Margrét Guðmundsdóttir, fyrrverandi formaður Félags atvinnurekenda, hafa tekið þátt í sem snúast í meginatriðum um það að uppfylla skilyrði viðsemjandans áður en samningur liggur fyrir og hvort hann verði samþykktur? Varla nokkrum. Hvaða stjórnandi fyrirtækis myndi enda sætta sig við slíkar viðræður?
Hins vegar er þetta nákvæmlega það sem viðræður um inngöngu í Evrópusambandið snúast um. Nokkuð sem þarf þó ekki að koma á óvart enda lítur sambandið á umsókn um inngöngu í það sem yfirlýsingu um að ætlunin sé að ganga þar inn. Fyrir vikið snúast viðræðurnar fyrst og fremst um aðlögun að öllu regluverki og stjórnsýslu Evrópusambandsins.
Margrét ritaði grein á Vísi á nýverið þar sem hún sagðist telja að atvinnulífið ætti að styðja það að hafið yrði umsóknarferli að Evrópusambandinu. Það væri ekki rétt að hennar sögn að taka ákvörðun nema að hafa allar upplýsingar. Hvaða upplýsingar ættu að bætast við það sem þegar liggur fyrir fylgdi þó ekki með frekar en hjá öðrum sömu skoðunar.
Við vitum að Evrópusambandið er að dragast aftur úr í heimsviðskiptunum. Við vitum að það á mjög undir högg að sækja þegar kemur að samkeppnishæfni, einkum vegna íþyngjandi regluverks. Við vitum að lágir stýrivextir eru einkum birtingarmynd efnahagslegrar stöðnun víðast hvar innan þess með litlum eða engum hagvexti og skorti á framleiðni.
Við vitum að umsókarferlið gengur út á fulla aðlögun að Evrópusambandini eins og áður segir. Það kemur skýrt fram í gögnum sambandsins og meira að segja viðurkennt í greinargerðinni með þingsályktun ríkisstjórnarinnar um þjóðaratkvæðið í lok mánaðarins. Þá segir einnig í gögnum Evrópusambandsins að stórauka þurfi umfang hins opinbera.
Vitanlega er ástæða fyrir því að mikill meirihluti atvinnulífsins er andvígur því miðað við kannanir að hefja umsóknarferli að Evrópusambandinu. Hvers vegna ætti að vera eftirsóknarvert að verða hluti af hnignandi markaðssvæði miðað við það sem er að gerast víða annars staðar í heiminum? Fyrir utan annað sem er enn mikilvægara eins og fullveldið.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Þjóðfáni Íslands. Eigandi: Dickelbers – Attribution 4.0 International)
