Talsvert hefur verið rætt um það í röðum stuðningsmanna Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur í formannsslagnum í Sjálfstæðisflokknum að Guðrún Hafsteinsdóttir hafi tapað fyrsta þingsætinu í Suðurkjördæmi í þingkosningunum í lok nóvember til Flokks fólksins og endað í öðru sætinu. Þar munaði þó einungis 121 atkvæði. Hins vegar vilja sömu aðilar alls ekki að vakin sé athygli á því að Áslaug missti sjálf fyrsta þingsæti Reykjavíkurkjördæmis suður. Hún fór þó ekki einungis niður í annað sætið heldur það þriðja. Niður fyrir bæði Samfylkinguna og Viðreisn.
Tveir oddvitar Sjálfstæðisflokksins voru fyrsti þingmaðurinn í sínum kjördæmum eftir kosningarnar. Bjarni Benediktsson í Suðvesturkjördæmi og Ólafur Adolfsson í Norðvesturkjördæmi. Guðlaugur Þór Þórðarson fór að sama skapi úr fyrsta sætinu í annað í Reykjavíkurkjördæmi norður og Jens Garðar Helgason er þriðji þingmaður Norðausturkjördæmis en eftir kosningarnar 2021 var Njáll Trausti Friðbertsson, þáverandi oddviti flokksins, í öðru sætinu. Enginn af oddvitunum fór hins vegar niður um tvö sæti nema Áslaug. Versti árangur flokksins í þeim efnum.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Alþingishúsið. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)

