Forystumenn Evrópusambandsins hafa í gegnum tíðina margítrekað lýst því yfir að dyr sambandsins séu alltaf opnar fyrir Íslandi. Til að mynda var þessu lýst yfir eftir að umsóknarferlinu var hætt á sínum tíma og hefur verið endurtekið á undanförnum mánuðum. Enda eftir miklu að slægjast fyrir Evrópusambandið að fá landið í sínar raðir.
„Dyr Evrópusambandsins verða auðvitað áfram opnar fyrir Ísland,“ sagði Maja Kocijancic, þáverandi talsmaður ríkisstjórnar Evrópusambandsins (framkvæmdastjórnarinnar), til að mynda á blaðamannafundi í marz 2015 eftir að þáverandi ríkisstjórn landsins hafði slitið umsóknarferlinu. Hliðstætt hefur komið fram af hálfu sambandsins að þessu sinni.
Fullyrðingar hérlendra Evrópusambandssinna, með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra í broddi fylkingar, um að einhverjum dyrnum væri lokað í þeim efnum ef hafnað yrði í þjóðaratkvæðinu í lok mánaðarins að setja stefnuna á inngöngu í Evrópusambandið standast þannig enga skoðun. Skipti þjóðin um skoðun tæki Brussel án efa vel í það.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Maja Kocijancic, fyrrverandi talsmaður ríkisstjórnar Evrópusambandsins. Eigandi: © European Union, 2025, licensed under CC BY 4.0)
