Fróðleg frétt birtist á fréttavef Vísis í dag þar sem fréttamaðurinn Elísabet Inga Sigurðardóttir reyndi ítrekað að fá það upp úr Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra hvort hún ætlaði að fara fram á varanlegar undanþágur frá sameiginlegri sjávarútvegsstefnu Evrópusambandsins verði samþykkt í þjóðaratkvæðinu í lok mánaðarins að hefja inngöngu í sambandið. Frá því er skemmst að segja að Þorgerður fékkst ekki til þess að taka undir það.
„Fáum þetta á hreint því margir telja að það sé einungis hægt að fá tímabundnar undanþágur frá sameiginlegri stefnu Evrópusambandsins. Þú munt sem sagt ekki fara fram á neitt annað en ævarandi undanþágur frá reglum Evrópusambandsins þegar kemur að sjávarútvegi?“ spurði Elísabet og fékk eftirfarandi svar: „Ég mun ekki fara með neitt annað fram heldur en sem tryggir íslenska hagsmuni til skemmri og lengri tíma.“ Elísabet spurði þá aftur:
„Ævarandi undanþágur?“ Svar Þorgerðar við þessu var aftur: „Til skemmri og lengri tíma.“ Elísabet spurði þá: „Þannig það gæti komið fram samningur þar sem við fáum undanþágur í sjávarútvegi en bara til fimmtíu ára?“ Þá svaraði ráðherrann: „Nei Elísabet Inga þú færð mig ekki til að segja já við þessu, kemur ekki til greina.“
Elísabet spurði þá: „En á þjóðin ekki rétt á að vita þetta?“ Og fékk svarið: „Ég er búin að segja það. Við munum fara í hörðustu samningaviðræður sem við ætlum í út af sjávarútvegi og ef að niðurstaðan þjónar ekki samningum Íslands þá mun ég segja nei. Hversu skýrt þarf það að vera? Það þýðir ekki að fara í einhvern orðhengilshátt hér.“
Málflutningur Þorgerðar hefur til þessa verið á sömu leið í þessum efnum. Hún hefur sagt að yfirráð Íslendinga yfir auðlindinni yrðu að vera tryggð en ekkert minnzt á að varanleg yfirráð í þeim efnum. Tímabundnar undanþágur hafa enda verið í boði af hálfu Evrópusambandsins frá valdi þess í sjávarútvegsmálum en ekki varanlegar.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. Eigandi: Skjáskot)
