Hver er glæpur Ólafs Ragnars?

Harðir Evrópusambandssinnar hafa brugðizt ókvæða við þeim orðum Ólafs Ragnars Grímssonar, fyrrverandi forseta lýðveldisins, að engan veginn sé víst að önnur þjóðaratvæðagreiðsla verði haldin um mögulegan samning um inngöngu í Evrópusambandið komi til hans. Hefur hann verið sakaður um lygar, blekkingar, hræðsluáróður og ýmislegt enn verra fyrir vikið. Hins vegar benti Ólafur einfaldlega á þá staðreynd að ekkert væri fast í hendi í þeim efnum.

Ég vil trúa því að önnur þjóðaratkvæðagreiðsla yrði haldin fari umsóknarferlið af stað aftur með tilheyrandi fullri aðlögun að regluverki og stjórnsýslu Evrópusambandsins áður en samningur lægi fyrir. En hvaða tryggingu höfum við fyrir því að sú verði raunin? Fyrir það fyrsta er vitanlega engin lagaleg skylda til þess og í annan stað er verið að ætlazt til þess að við treystum stjórnmálamönnum í þeim efnum sem hafa ítrekað sagt eitt en gert síðan annað í Evrópumálunum.

Hitt er svo annað mál að Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hefur sem kunnugt er áskilið sé rétt til þess að setja ekki samning um inngöngu í Evrópusambandið í þjóðaratkvæði ef henni sjálfri lízt ekki á hann. Með öðrum orðum hefur sjálfur leiðtogi ríkisstjórnarinnar lýst því yfir að til þess gæti hreinlega komið að það yrði ekki önnur þjóðaratkvæðagreiðsla. Hver er nákvæmlega glæpur Ólafs Ragnars að vekja athygli á þessum frekar borðleggjandi staðreyndum?

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands. Eigandi: Skjáskot af Ruv.is)