Hvernig unnið yrði úr niðurstöðunni?

Haft var eftir Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra í Reykjavík sídegis fyrir helgi að yrði niðurstaðan í þjóðaratkvæðinu um Evrópusambandið í lok mánaðarins nei yrði fyrsta skref hennar að ráðfæra sig við utanríkismálanefnd Alþingis. Í framhaldinu yrði síðan tekin sameiginleg ákvörðun um það „hvernig unnið yrði úr niðurstöðunni.“ Hins vegar kom ekki fram með hvaða hætti þyrfti að vinna úr þeirri niðurstöðu kæmi til hennar.

Verði niðurstaða þjóðaratkvæðisins að hafna því að hafin verði innganga í Evrópusambandið með tilheyrandi fullri aðlögun að stjórnsýslu og regluverki sambandsins áður en mögulegur samningur lægi fyrir yrði einfaldlega ekki farið í það umfangsmikla, kostnaðarsama og tímafreka ferli með því álagi sem fylgdi á kostnað annarra mála sem ólíkt því væru brýn. Eins og til að mynda efnahagsmálanna, heilbrigðismálanna, menntamálanna og samgöngumálanna.

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hefur ítrekað og réttilega talað um það álag á stjórnsýsluna sem umsóknarferlið hefði í för með sér. Hún hefur líka sagt réttilega að Evrópumálin væru ekki lausn á efnahagsmálunum. Verði niðurstaðan nei verður enda hægt að einbeita sér að því að tækla þau. Verði niðurstaðan hins vegar já verður ríkur pólitískur hvati til þess að staðan lagist ekki enda minnkar þá aðeins áhugi fólks á inngöngu í Evrópusambandið.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Maros Sefcovic, viðskiptaráðherra Evrópusambandsins. Eigandi: © European Union, 2025, licensed under CC BY 4.0)