Hanna Katrín Friðriksdóttir atvinnuvegaráðherra hélt því fram í Vikulokunum í dag að varanlegar undanþágur væru í boði af hálfu Evrópusambandsins. Þær hétu sérlausnir. Þetta tvennt er hins vegar sitt hvor hluturinn. Sérlausnir fela aðeins í sér afmarkaðar stjórnsýslubreytingar en breyta engu um það að valdið fer til sambandsins. Eina leiðin til þess að komast hjá því eru varanlegar undanþágur (opt-outs) frá valdi þess sem hafa aldrei staðið umsóknarríkjum til boða.
Málflutningur Hönnu Katrínar er ekki nýr af nálinni. Harðir Evrópusambandssinnar hafa lengi reynt í blekkingarskyni að telja fólki trú um að þetta tvennt sé eitt og hið sama. Það er hins vegar sem fyrr segir í fullkominni andstöðu við veruleikann og það sem beinlínis kemur fram í gögnum Evrópusambandsins sjálfs í þeim efnum. Þar er gerður afdráttarlaus greinarmunur til að mynda á sérlausnum og varanlegum undanþágum. Enda engan veginn um að ræða sama hlutinn.
Hitt er svo annað mál að í þessum málflutningi felst eðli málsins samkvæmt viðurkenning á því að ekki sé mögulegt að semja sig undan valdi Evrópusambandsins og að markmið ríkisstjórnarinnar sé fyrir vikið einungis að fá sérlausnir. Sem samrýmist því vel til að mynda þegar Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra vildi aðspurð í samtali við Sýn fyrir helgi alls ekki segja já við því að reynt yrði að fá varanlega undanþágu frá stjórn sambandsins í sjávarútvegsmálum.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra og Costas Kadis sjávarútvegsráðherra Evrópusambandsins. Eigandi: © European Union, 2025, CC BY 4.0)
