„Aðlögunarferli hefst við aðlögunarviðræður“

Margt áhugavert kom fram í kappræðunum um Evrópusambandið sem fram fóru í Hörpu í gær á vegum Paradigm þar sem fulltrúar andstæðra sjónarmiða tókust á. Annars vegar Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi utanríkisráðherra, og Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður flokksins, sem leggjast gegn umsóknarferli að sambandinu og hins vegar Jónas Hagan og Hjálmar Vilhjálmsson, fulltrúar samtakanna SJÁ, sem vilja hefja það.

Meðal þess sem kom fram í kappræðunum var viðurkenning Jónasar á því að viðræður um inngöngu í Evrópusambandið fælu í sér aðlögun að sambandinu. Hún kom í kjölfar fyrirspurnar í þeim efnum úr sal þar sem bent var á að fram kæmi með skýrum hætti á vefsíðu Evrópusambandsins að slík aðlögun ætti sér stað samhliða þeim. „Ég er bara alveg sammála þér. Aðlögunarferli hefst við aðlögunarviðræður. Það liggur alveg fyrir. Það ætti ekki að dyljast neinum,“ sagði Jónas.

Hins vegar vildi Jónas meina að aðlögunin næði aðeins til tolla- og peningamála. Ísland myndi hvorki ganga í tollabandalag Evrópusambandsins né taka upp evruna fyrr en komið væri inn í sambandið og fyrir vikið yrði engin aðlögun fyrr en það hefði verið samþykkt. Fram kemur hins vegar í gögnum Evrópusambandsins vegna umsóknar Íslands að krafan um aðlögun samhliða viðræðunum nái til málaflokka almennt og þar á meðal og ekki sízt til að mynda til tollamálanna.

Fram kemur skýrt í gögnum Evrópusambandsins um stækkunarmál þess að umsóknarferli að sambandinu gangi út á fulla aðlögun að regluverki þess og stjórnsýslu. Til að mynda kemur það fram í viðræðuramma Evrópusambandsins vegna umsóknar Íslands: „Rétt innleiðing Íslands á regluverkinu og framkvæmd þess, þ.m.t. árangursrík og skilvirk beiting af hálfu viðeigandi stofnana á sviði stjórnsýslu og dómsmála, mun ákvarða hversu hratt viðræðurnar ganga fyrir sig.“

Hins vegar er ekki nóg með það heldur hefur það einnig komið fram í gögnum íslenzkra stjórnvalda. Þar með talið í sjálfri greinargerðinni með þingsályktun Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra um þjóðaratkvæðið sem fram fer í lok mánaðarsins: „Á það er gjarnan bent að aðildarviðræður við ESB snúist um að ný aðildarríki lagi sig að reglum sambandsins. Má þetta til sanns vegar færa, enda væri Ísland að ganga í ríkjabandalag með fyrirliggjandi reglum.“

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Frá kappræðunum. Eigandi: Skjáskot)