„Það er algjört glapræði að fara inn í Evrópusambandið og vera ekki hluti af sameiginlegu sjávarútvegsstefnunni,“ sagði Hjálmar Vilhjálmsson, einn forystumanna samtakanna SJÁ, í kappræðunum um Evrópusambandið sem fram fóru í Hörpu um helgina á vegum Paradigm þar sem fulltrúar andstæðra sjónarmiða tókust á. Með öðrum orðum vilja samtökin ekki einu sinni láta reyna á það að fá varanlega undanþágu frá stefnunni og þar með yfirþjóðlegu valdi sambandsins í sjávarútvegsmálum.
Fyrr í sumar sagði Jónas Hagan, annar forystumanna SJÁ sem einnig tók þátt í kappræðunum, í umræðum á Facebook að hann væri ekki að halda því fram „að Ísland gæti samið sig undan grundvallarskilmálum ESB.“ Til umræðu var Lissabon-sáttmáli Evrópusambandsins, grundvallarlöggjöf þess, og ákvæði hans um óskipt vald sambandsins yfir líffræðilegum auðlindum sjávar. Með öðrum orðum sagði hann að Ísland myndi ekki geta samið sig frá yfirstjórn Evrópusambandsins í þeim efnum.
Stjórnarliðar hafa að undanförnu tekið fram að hvorki verði farið fram á varanlegar undanþágur frá valdi Evrópusambandsins í sjávarútvegsmálum né öðrum málum. Dagbjört Hákonardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og nefndarmaður í utanríkismálanefnd Alþingis, talaði til dæmis á þeim nótum í Bítinu í síðustu viku og um sama leyti þvertók Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra fyrir að svara því játandi í samtali við Sýn að sótzt yrði eftir slíkum undanþágum.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Hjálmar Vilhjálmsson og Jónas Hagan. Eigandi: Skjáskot)
