„Ég hef lagt á það þunga áherslu að þessi kafli og kaflinn um landbúnað verði opnaðir sem fyrst, komi til viðræðna, og ég hygg að þessir kaflar muni koma til með að lokast síðast.“ Þetta sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra í grein á Vísi 30. marz síðastliðinn um sjávarútvegskafla mögulegra viðræðna um inngöngu Íslands í Evrópusambandið. Ekki vantaði að ríkisstjórnin sem var við völd síðast þegar umsóknarferlið var í gangi hafi lagt áherzlu á að opna sjávarútvegskaflann strax. Sú varð hins vegar aldrei raunin vegna þess að sambandið skilaði aldrei rýniskýrslu sinni um kaflann.
Veruleikinn er einfaldlega sá að Evrópusambandið ræður ferðinni í þeim efnum. „Mikilvægustu kaflarnir, þar sem tekist hefði verið á um mestu hagsmunina, höfðu ekki enn verið opnaðir þegar viðræðunum var hætt, en eins og fram kemur í skýrslu Alþjóðmálastofnunar hefðu þeir hagsmunir, þ.á.m. á sviði sjávarútvegs, landbúnaðar, umhverfismála, efnahags- og peningamála, byggðastefnu og uppbyggingarsjóðs, auk framlagsmála, beðið „lokarimmu“ viðræðnanna,“ segir í drögum að skýrslu sem Gunnars Pálssonar, þáverandi sendiherra, vann fyrir utanríkisráðuneytið árið 2018.
„Þegar viðræðunum var hætt nokkrum vikum síðar, lágu fáar staðreyndir fyrir um afstöðu sambandsins til mikilvægustu þjóðarhagsmuna Íslands í viðræðunum. Sú aðferð sem beitt var í viðræðunum virðist á hinn bóginn hafa miðast við að sem flestum köflum viðræðnanna yrði lokað áður en lokarimman hæfist og skriðþungi viðræðnanna þannig orðinn tilfinnanlegur og sýnilegur áður en til þess kæmi,“ segir enn fremur. Sem sagt að skapa þrýsting á að klára ferlið þrátt fyrir að ekki fengist ásættanleg niðurstaða í erfiðu köflunum vegna þess hversu mikið hefði verið lagt í viðræðurnar.
Framganga Evrópusambandsins í þessum efnum er vel þekkt þegar það er annars vegar. Tilgangurinn með því að klára erfiðustu kaflana síðast er ekki sízt að svigrúmið til þess að fara ofan í saumana á niðurstöðunni verði sem minnst. Þorgerður endurtók það í Kastljósinu í gærkvöldi að hún vildi opna sjávarútvegskaflan strax en minntist hins vegar ekki á það að þessu sinni að þó að sú yrði raunin yrði honum að öllum líkindum ekki lokað fyrr en undir lokin. Ef viðræðurnar næðu svo langt. Sem fyrr segir ræður sambandið ferðinni en ekki umsóknarríkið líkt og stjórnvöld ráku sig á síðast.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Maros Sefcovic, viðskiptaráðherra Evrópusambandsins. Eigandi: © European Union, 2025, licensed under CC BY 4.0)
