Hvað gerist ef niðurstaðan verður já?

Verði samþykkt í þjóðaratkvæðinu á laugardaginn að hefja inngöngu í Evrópusambandið, með tilheyrandi fullri aðlögun að regluverki og stjórnsýslu sambandsins áður en samningur lægi fyrir, verður þetta mál málanna næstu árin með þeim miklu útgjöldum, tíma og álagi á stjórnsýsluna sem því mun fylgja á kostnað mikilvægra mála. Til að mynda efnahagsmálanna, heilbrigðismálanna, menntamálanna og samgöngumálanna. Evrópusambandsmálið mun skyggja á öll önnur og umræðan, sem verið hefur í gangi í sumar og flestir hafa líklega þegar fengið nóg af, mun halda áfram.

Hér er enginn skáldskapur á ferð. Svona var þetta síðast þegar viðræðuferlið var í gangi eins og margir muna. Ég starfaði þá sem blaðamaður á Morgunblaðinu og mbl.is. Fréttir voru sagðar daglega af ferlinu, stjórnsýslan var að stóru leyti undirlögð verkefnum vegna þess og önnur mál sátu fyrir vikið á hakanum eða var ekki sinnt sem skyldi. Innviðaskuldin sem oft er talað um varð til dæmis einkum til á þessum árum. Þá sátu ýmis mál einnig á hakanum vegna þess að þáverandi stjórnvöld höfðu lýst því yfir að ekki væri hægt að taka á þeim nema með því að ganga í Evrópusambandið.

Efnahagsástandið batni ekki

Dæmi um þetta eru gjaldeyrishöftin. Samfylkingin, sem fór fyrir þáverandi ríkisstjórn, hafði þannig lýst því yfir að höftin yrðu ekki afnumin nema Ísland gengi í Evrópusambandið. Fyrir vikið var sáralítið sem ekkert gert í þeim efnum. Síðar var tekið á málinu af ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins sem tók við völdum af henni. Við erum í hliðstæðri stöðu núna. Ríkisstjórnin, í það minnsta Viðreisn sem fer með fjármála- og efnahagsráðuneytið, hefur þannig sagt að forsenda þess að minnka verðbólgu og lækka vexti sé að ganga í sambandið. Sem er vitanlega alrangt.

Hins vegar þýðir það einfaldlega að verði samþykkt að hefja viðræðuferlið á nýjan leik verður ríkur pólitískur hvati til þess að staða efnahagsmálanna lagist ekki. Þá verður einungis minni áhuga á því að ganga formlega í Evrópusambandið sem verður mun erfiðara að sannfæra þjóðina um. Eða eins og Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra orðaði það 27. águst 2024 í hlaðvarpinu Chess After Dark: „Það sem gerist svo ítrekað með Evrópusambandið er þegar það gengur illa, þegar það er komin verðbólga, þegar það eru háir vextir, þá byrjar fólk að vilja ganga inn í Evrópusambandið.“ 

Algerlega þvert á gögn málsins

Viðræðuferlið gengur út á fulla aðlögun að Evrópusambandinu sem fyrr segir áður en samningur lægi fyrir. Þetta kemur skýrt fram í gögnum sambandsins í þeim efnum og ekki síður þeim gögnum sem snúa að umsókn Íslands. Þar á meðal í svonefndum viðræðuramma Evrópusambandsins sem felur í sér umboð sambandsins í viðræðunum frá ríkjum þess. Þar segir meðal annars: „Rétt innleiðing Íslands á regluverkinu og framkvæmd þess, þ.m.t. árangursrík og skilvirk beiting af hálfu viðeigandi stofnana á sviði stjórnsýslu og dómsmála, mun ákvarða hversu hratt viðræðurnar ganga fyrir sig.“

Meira að segja kemur skýrt fram í greinargerðinni með þingsályktun Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra um þjóðaratkvæðið að viðræðurnar snúist um aðlögun að regluverki Evrópusambandsins. „Á það er gjarnan bent að aðildarviðræður við ESB snúist um að ný aðildarríki lagi sig að reglum sambandsins. Má þetta til sanns vegar færa, enda væri Ísland að ganga í ríkjabandalag með fyrirliggjandi reglum,“ segir þannig í greinargerðinni.“ Á sama tíma er því hafnað í röðum Evrópusambandssinna með Þorgerði fremsta í flokki. Algerlega þvert á gögn málsins.

Er þá ekki bezt að segja nei?

Við þetta bætist síðan að samkvæmt gögnum Evrópusambandsins er stjórnsýslan hér á landi of lítil til þess að ráða við veru innan sambandsins. Koma þurfi því til mikillar „stofnanauppbyggingar“. Enda felur umsókn í sér viljayfirlýsingu um að ganga þar inn. Í viðræðurammanum segir að sameiginlegt markmið sé innganga í það. Eða eins og Magnús Árni Skjöld Magnússon, formaður Evrópuhreyfingarinnar, sagði 10. janúar í samtali við DV: „Það er auðvitað augljóst að það þarf auðvitað að vera vilji til þess að stíga skrefið inn í Evrópusambandið til þess að hefja aðildarviðræður að nýju.“

Vert er að hafa þetta í huga varðandi það hvaða umboð verið sé að veita stjórnvöldum verði niðurstaðan sú að taka stefnuna á Evrópusambandið. Ekki síður þegar óljóst er í bezta falli hverju þau muni taka mið af í þeim efnum enda hafa þau ítrekað hafnað því að tilgreina einhver rauð strik sem ekki verði farið yfir. Á dögunum þvertók Þorgerður, sem verður verkstjórinn í ferlinu fari það af stað, fyrir það í samtali við Sýn að svara því játandi að farið yrði fram á varanlegar undanþágur frá sjávarútvegsstefnu sambandsins. Þegar ekki er vitað hvað er verið að samþykkja, er þá ekki bezt að segja nei?

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Birtist áður í Morgunblaðinu 25. ágúst 2026)

(Ljósmynd: Höfuðstöðvar ríkisstjórnar Evrópusambandsins. Eigandi: © European Union, 2025, CC BY 4.0)