Marta Kos talar þvert á umboð sitt

Haft var eftir Mörtu Kos, stækkunarráðherra Evrópusambandsins, í fréttum Sýnar í kvöld að ekki kæmi til þess að íslenzkum lögum yrði breytt til samræmis við regluverk sambandsins fyrr en samningur yrði samþykktur. Þau ummæli eru hins vegar meðal annars þvert á viðræðuramma Evrópusambandsins vegna umsóknar Íslands frá því síðast þegar umsóknarferlið var í gangi sem felur í sér umboð ríkisstjórnar sambandsins (framkvæmdastjórnarinnar), sem Kos situr í, frá ríkjum þess.

Fram kemur með skýrum hætti í viðræðurammanum að aðlögun að regluverki Evrópusambandsins þurfi að eiga sér stað samhliða viðræðunum. Hið sama kemur fram í öðrum gögnum sambandsins um umsóknarferli ríkja að því. Til að mynda segir þannig í viðræðurammanum: „Rétt innleiðing Íslands á regluverkinu og framkvæmd þess, þ.m.t. árangursrík og skilvirk beiting af hálfu viðeigandi stofnana á sviði stjórnsýslu og dómsmála, mun ákvarða hversu hratt viðræðurnar ganga fyrir sig.“

Haft var eftir Kos í fréttum Ríkisútvarpsins 9. júní að viðræðuramminn yrði sem fyrr grundvöllur viðræðnanna um inngöngu Íslands í Evrópusambandið ef samþykkt yrði í þjóðaratkvæðinu að hefja þær á nýjan leik. „Ísland innleiðir þegar stóran hluta af regluverki Evrópusambandsins og varðandi þá aðlögun sem upp á vantar er viðræðuramminn frá 2010 enn grundvöllurinn,“ sagði hún. Kos er þannig með orðum sínum nú að fara út fyrir umboð sitt frá ríkjunum. Ekkert nýtt umboð liggur fyrir.

Fréttavefurinn Euractiv hafði eftir tveimur embættismönnum Evrópusambandsins 7. ágúst að íslenzk stjórnvöld hefðu farið fram á það við ríkisstjórn sambandsins að hún skipti sér ekki af þjóðaratkvæðinu. Var í þeim efnum aðallega vísað til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra. Hins vegar kom enn fremur fram í fréttinni að þrátt fyrir það væru háttsettir embættismenn á vegum Evrópusambandsins „að skoða leiðir til þess að hjálpa já-hliðinni án þess að styggja íslenzk stjórnvöld.“

Haft var eftir talsmanni ríkisstjórnar Evrópusambandsins í frétt Euractiv að hún hefði „aldrei afskipti af kosningum ríkja eða þjóðaratkvæðum á nokkurn hátt. Íslenzk stjórnvöld hafa boðað til þessa þjóðaratkvæðis og það er einungis íslenzku þjóðarinnar að taka ákvörðun.“ Ekki verður sagt að viðtalið við Kos í fréttum Sýnar sé beinlínis í samræmi við þetta. Þá kom enn fremur fram að utanríkisráðuneyti Íslands hefði ekki viljað tjá sig um mögulega aðstoð sambandsins við já-hliðina.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Marta Kos, stækkunarráðherra Evrópusambandsins. Eigandi: © European Union, 2025, licensed under CC BY 4.0)