Hótaði að sprengja stjórnarsamstarfið

Fyrir bráðum ári síðan stóð Inga Sæland, þá félags- og húsnæðismálaráðherra, upp frá ríkisstjórnarborðinu og gerði sig líklega til þess að rjúka á dyr hótandi því að sprengja ríkisstjórnarsamstarfið ef hún fengi það ekki í gegn að lagafrumvarp yrði lagt fram í nafni stjórnarinnar og samþykkt sem fæli í sér að greiðslur almannatrygginga fylgdu launavísitölunni.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra hafði þá lýst alvarlegum efasemdum um slíkt frumvarp á fundinum. Inga talaði hátt svo heyrðust orðaskil í nærliggjandi herbergjum. Lýsti hún óánægju sinni með rýra uppskeru Flokks fólksins í stjórnarsamstarfinu. Strandveiðifrumvarpið hefði þannig til dæmis ekki náð fram að ganga á sumarþinginu.

Tókst að lokum að fá Ingu til þess að setjast. Málinu var loks lent þannig að frumvarpið yrði lagt fram og var það síðan samþykkt á Alþingi í marz. Á móti var fallizt á þá kröfu Þorgerðar að þjóðaratkvæðinu um Evrópusambandið yrði flýtt sem einnig varð raunin sem kunnugt er. Þetta er ekki í eina skiptið sem hótað hefur verið stjórnarslitum og varla það síðasta.

Mikil orka hefur farið í það hjá Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra frá því að ríkisstjórnin tók við völdum að miðla málum á stjórnarheimilinu á milli þeirra Ingu og Þorgerðar. Ástæða er fyrir því hversu oft og ítrekað þær hafa fundið sig knúnar til þess að taka það fram opinberlega að þær væru miklar vinkonur. Brestirnir verða ekki minni eftir þjóðaratkvæðið.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Inga Sæland, formaður Flokks fólksins. Eigandi: Flokkur fólksins)