„Selt allan kvótann minn til Hollendings“

„Ég fór á einn fund um daginn þar sem manneskja, sem er með mikla hagsmuni í útgerð, byrjaði á að ávarpa herbergið með: Ég ætla að kjósa já vegna þess að ef við göngum inn í Evrópusambandið þá get ég selt allan kvótann minn til Hollendings og cash-að út,“ sagði Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra í hlaðvarpinu Chess After Dark í gær.

Fyrr á árinu sendi ráðgjafafyrirtækið Arctice Finance þá greiningu til viðskiptavina sinna að innganga í Evrópusambandið hefði jákvæð áhrif fyrir stórar íslenzkar útgerðir jafnvel þó engar undanþágur fengjust. Við inngöngu myndu allir innan sambandsins „hafa rétt á að kaupa íslenzkar útgerðir og kvóta, hvort sem það eru rekstrarfélög eða sjóðir.“

Fram kemur að virði einkum stærstu útgerðanna myndi aukast verulega þegar ekki væri lengur hægt að takmarka erlent eignarhald á þeim eins og raunin er í dag þar sem erlendir aðilar mega ekki eiga ráðandi hlut í íslenzkum útgerðarfyrirtækjum. Slík takmörkun færi hins vegar gegn reglum Evrópusambandsins um frjálst flæði fjármagns.

„Gjöful mið okkar yrðu augljóslega eftirsótt,“ segir enn fremur í greiningunni og að líklegt sé að fjárhagslegt virði kvóta hér á landi myndi „aukast verulega“ við inngöngu Íslands í Evrópusambandið. Vert er að hafa þetta í huga þegar talsmenn inngöngu í sambandið halda því fram að þeir sem ekki vilja þangað inn gangi erinda stórútgerðarinnar.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar. Eigandi: © European Union, 2025, CC BY 4.0)