Meginreglum ekki breytt vegna Íslands

„Ég tel ekki að Ísland geti vænzt mikils sveigjanleika af hálfu Evrópusambandsins,“ sagði David Phinnemore, prófessor í evrópskum stjórnmálum við Queen’s University í Belfast á Norður-Írlandi og sérfræðingur í stækkunarstefnu sambandsins, í samtali við fréttavefinn Intrafish 21. ágúst. „Og það á ekki bara við um Brussel heldur einnig aðildarríkin.“

„Ég sé ekki endilega fyrir mér að Evrópusambandið flýti sér að taka við Íslandi og alls ekki að það slaki á meginreglum eingöngu til að fá landið inn,“ sagði Phinnemore enn fremur. Hafa þyrfti í huga að sambandið væri alltaf mjög varfærið þegar kæmi að því að skapa möguleg fordæmi. Eftirgjöf gagnvart Íslandi gæti skapað hugsanleg fordæmi fyrir önnur ríki.

Mögulegur samningur um inngöngu Íslands í Evrópusambandið þyrfti samþykki allra ríkja þess. Ríki innan sambandsins með verulega hagsmuni á sviði sjávarútvegs og áhuga á því að komast í íslenzk fiskimið myndu hafa hagsmuni eigin sjávarbyggða í huga við mat á huganlegum samningi. „Það þýðir að sjávarútvegurinn yrði mjög, mjög erfitt mál að leysa.“

Tilteknar aðlaganir gætu mögulega átt sér stað í tilfelli Íslands en þær yrðu undantekningartilfelli og tímabundnar fremur en varanlegar að sögn Phinnemores. Engu að síður gæti verið svigrúm fyrir fyrirkomulag sem tæki mið af sérstöðu Íslands. „En ég á mjög erfitt að sjá fyrir mér að Ísland gæti staðið alfarið fyrir utan sameiginlegu sjávarútvegsstefnuna.“

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: David Phinnemore, prófessor í evrópskum stjórnmálum við Queen’s University í Belfast. Eigandi: Queen’s University Belfast)