Mikla athygli vakti að aðrir í þingflokki Sjálfstæðisflokksins hafi ekki látið sjá sig á fundi Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, þingmanns flokksins, í dag þar sem hún lýsti yfir framboði sínu til formanns. Fyrir því geta vitanlega verið ýmsar skýringar eins og Hildur Sverrisdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, segir í samtali við Vísi í dag. Tímasetningin kunni þannig að hafa hentað illa eða að þeir vilji halda að sér höndum þar til ljóst verði hverjir aðrir bjóði sig fram.
Fundur Áslaugar var annars greinilega vel skipulagður af almannatenglum og hvergi dregið úr til þess að skapa góða sýningu. Minnir hann óneitanlega á upphaf framboðs Baldurs Þórhallssonar í aðdraganda forsetakosninganna fyrir rúmu ári síðan en hann var einmitt fyrstur til þess að lýsa yfir framboði með blaðaauglýsingum og fjöldafundi með hliðstæðu sniði sem fram fór í Bæjarbíói í Hafnarfirði. Markmiðið með slíku er iðulega að reyna að fæla frá mögulega samkeppni.
Hins vegar er það gömul saga og ný að innihaldið skiptir meira máli en umbúðirnar. Reyndar er það ósjaldan svo að því meiri sem umbúðirnar eru því minna er innihaldið. Umbúðirnar eru þá hugsaðar til þess að reyna að bæta hitt upp og beina sjónum frá því. Það er líka auðvelt að segja réttu hlutina en gera svo allt annað. Til að mynda að tala fyrir því að farið sé vel með skattfé en láta síðan til dæmis kaupa dönsk hönnunarhúsgögn fyrir fleiri milljónir í nýja ráðuneytið sitt.
Við sjálfstæðismenn þurfum nýtt upphaf eftir það sem á undan er gengið en ekki meira af því sama. Áslaug er vitanlega ýmsum kostum gædd en hins vegar verður til að mynda ekki framhjá því horft að hún sat við ríkisstjórnarborðið með Vinstri grænum í fimm ár þar sem teknar voru ákvarðanir sem margar hverjar voru alls ekki ásættanlegar frá sjónarhóli okkar sjálfstæðismanna sem öðru fremur hefur í seinni tíð valdið og viðhaldið óásættanlega lágu fylgi flokksins okkar.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Alþingishúsið og Dómkirkjan. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)
