Sætin sex við borðið fyrir 175 árum

Fyrir 175 árum síðan, nánar tiltekið sumarið 1851, fór þjóðfundurinn fram í Reykjavík þar sem fulltrúi Danakonungs, Trampe greifi, fór fram á það að fundurinn samþykkti að Ísland yrði hluti Danmerkur, hefði sömu lög og giltu þar í landi, Alþingi yrði ráðgjafaþing en ekki löggjafarþing og Íslendingar gætu þess í stað kosið sex fulltrúa á danska þingið. Þessu mótmæltu þjóðkjörnir fulltrúar Íslands á fundinum og af því tilefni féllu hin fleygu orð „Vér mótmælum allir.“

Mögulega felst í því ákveðin kaldhæðni að við Íslendingar stöndum nú frammi fyrir því að kjósa um það í þjóðaratkvæði á laugardaginn hvort hefja eigi inngöngu í Evrópusambandið þar sem við fengjum einmitt sex fulltrúa á þing þess. Af hins vegar vel yfir 700 en árið 1851 voru aðeins um eitt hundrað þingmenn í neðri deild danska þingsins. Með inngöngu yrði Ísland hluti sambandsins, sem stefnir að því að verða að sambandsríki, og færi undir yfirþjóðlega löggjöf þess.

Frá upphafi hefur markmiðið með samrunaþróuninni innan Evrópusambandsins og forvera þess verið að til yrði á endanum eitt ríki. Þannig kom fram í Schuman-yfirlýsingunni frá 1950, sem lagði grunninn að sambandinu eins og við þekkjum það í dag, að fyrsta skrefið væri að koma kola- og stálframleiðslu Evrópuríkja undir eina yfirþjóðlega stjórn en lokaskrefið væri evrópskt sambandsríki (e. the federation of Europe). Síðan hafa jafnt og þétt verið tekin fleiri skref í þá átt.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Málverk Gunnlaugs Blöndal af þjóðfundinum 1851. Eigandi: Alþingi)