Verður Þorgerður sendiherra í Þýzkalandi?

Heimildir herma að í kjölfar ósigursins í þjóðaratkvæðagreiðslunni um Evrópusambandið sé aðeins tímaspursmál hvenær Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra hverfi úr utanríkisráðuneytinu og taki að sér annað ráðuneyti. Talið er líklegast að atvinnuvegaráðuneytið verði fyrir valinu en hún var áður til skamms tíma sjávar­útvegs- og landbúnaðarráðherra. Ástæðan fyrir því að hún kaus að fara í utanríkisráðuneytið var enda fyrst og síðast þjóðaratkvæðið.

Hugmyndin er síðan að áður en ríkisstjórnin fari frá með einum eða öðrum hætti muni Hanna Katrín skipa Þorgerði sendiherra í Þýzkalandi. Þorgerður bjó um árabil í Þýzkalandi á meðan eiginmaður hennar, Kristján Arason, var þar í atvinnumensku í handbolta og kunni því vel. Sonur þeirra, Gísli Þorgeir Kristjánsson, er nú atvinnumaður í handbolta þar í landi og spilar með SC Magdeburg. Einungis er um tveggja tíma akstur á milli Magdeburg og Berlínar þar sem sendiráðið er.

Komi til þess að ríkisstjórnin sitji út kjörtímabilið verður kosið næst haustið 2028. Núverandi sendiherra Íslands í Þýzkalandi er Auðunn Atlason sem tók við embættinu 1. ágúst 2024. Skipunartími sendiherra á hverri sendiskrifstofu er einmitt að jafnaði fjögur ár en getur þó verið styttri samkvæmt ákvörðun ráðherra. Takist ríkisstjórninni þannig ekki að sitja heilt kjörtímabil gæti skipunartími Auðuns í Berlín orðið styttri í annan endann til þess að rýma fyrir Þorgerði í sendiráðinu.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. Eigandi: Mfa.gov.ua – Attribution 4.0 International)