Hafnað að fara í umsóknarferli að ESB

Hafnað var í þjóðaratkvæðinu í gær með 53% greiddra atkvæða að hafið yrði á nýjan leik umsóknarferli að Evrópusambandinu á grundvelli umsóknar þáverandi ríkisstjórnar landsins frá 2009. Fyrir vikið er eðlilegt næsta skref að umsóknin verði dregin formlega til baka eins og Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, hefur kallað eftir.

Málið hefur verið afgreitt af þjóðinni og er út af borðinu. Kæmi til þess engu að síður að það yrði sett á dagskrá í framtíðinni væri lágmarkið að það væri gert á grundvelli nýrrar umsóknar ríkisstjórnar sem hefði til þess umboð kjósenda í þingkosningum, ólíkt því sem nú var raunin, og einnig háð sérstöku samþykki þjóðarinnar eins og fordæmi er nú fyrir.

Fyrirliggjandi umsókn er orðin 17 ára gömul og verður eðli málsins samkvæmt ekki yngri á næstum árum. Vart getur talizt ásættanlegt að hún liggi í skúffu árum og jafnvel áratugum saman og dustað rykið af henni þegar stjórnmálamönnum dettur það í hug. Verði málið einhvern tímann sett á dagskrá aftur er eðlilegt að ferlið hefjist á byrjunarreit.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Frá Þingvöllum. Eigandi: Eric Spenle)