Norðmenn sem fyrr andvígir inngöngu í ESB

Fleiri eru eins og fyrri daginn andvígir inngöngu í Evrópusambandið í Noregi en hlynntir samkvæmt niðurstöðum nýjustu skoðanakönnunar Sentio fyrir norsku dagblöðin Nationen og Klassekampen. Þannig eru 47,7% Norðmanna á móti því að ganga í sambandið en 31,5% því hlynntir. Könnunin var gerð í ágúst. Fyrir þjóðaratkvæðið hér á landi.

„Við þurfum nú að beina orkunni að því að standa vörð um norska hagsmuni. Ekki að eyða henni í langt, krefjandi umsóknarferli [að Evrópusambandinu] sem hætta er á að sundri okkur,“ sagði Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs og leiðtogi Verkamannaflokksins, í ræðu sinni á landsfundi flokksins á síðasta ári. Málið væri ekki á dagskrá.

Mikill meirihluti þingmanna á norska Stórþinginu hafnaði í marz þingsályktunartillögu þingmanna Venstre, systurflokks Viðreisnar, um að ríkisstjórnin hæfi athugun á mögulegri inngöngu Noregs í Evrópusambandið. Þingsályktunartillögunni var hafnað með 78 atkvæðum gegn 21. Þá var öðrum ályktunum í þeim anda að sama skapi hafnað.

Fleiri hafa verið andvígir inngöngu í Evrópusambandið í öllum könnunum sem birtar hafa verið í Noregi frá því á fyrrihluta árins 2005 eða í meira en tvo áratugi. Hér á landi var meirihluti í öllum birtum könnunum frá 2009-2022. Það þurfti innrás rússneska hersins í Úkraínu til þess að breyta því um tíma. Frá upphafi árs 2025 hefur sú verið raunin aftur.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Norski fáninn. Eigandi: Bjørn Erik Pedersen – Attribution 4.0 International)