Viljandi ekki sent fyrr en eftir þjóðaratkvæðið

Fyrir meira en fimm vikum síðan sendi ég fyrirspurn til upplýsingaþjónustu Evrópusambandsins þar sem ég spurði hvort hún gæti „staðfest að samkomulag hafi verið til staðar á milli Íslands og sambandsins, þegar umsóknarferli landsins var í gangi 2009-2013, um að engin aðlögun að regluverki þess og stofnunum þyrfti að eiga sér stað fyrr en eftir að samið hefði verið um aðildarsamning og hann samþykkur.“ Mér barst loks svar snemma í gærmorgun, klukkan rúmlega hálf níu að belgískum tíma. Spurningunni var ekki svarað beint en staðfest að framganga viðræðnanna hefði verið háð aðlögun.

Með öðrum orðum er efnislega ljóst af svari Evrópusambandsins að ekkert slíkt samkomulag hafi verið gert enda hefði þá alls engin slík aðlögun þurft að eiga sér stað. Fram kemur í svarinu að fyrirspurninni hefði verið svarað í samráði við stækkunarráðuneyti sambandsins. Það er að segja ráðuneyti Mörtu Kos, stækkunarráðherra Evrópusambandsins, sem sagði aðspurð 22. ágúst í viðtali við Sýn að engar lagabreytingar þyrftu að eiga sér stað hér á landi fyrr en eftir samþykkt samnings. Þau ummæli samræmast hins vegar hvorki svarinu né öðrum gögnum sambandsins í þessum efnum.

„Með fyrirvara um niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst væri Íslandi ekki almennt lagalega skylt að innleiða regluverk Evrópusambandsins, breyta stjórnarskrá sinni eða framselja fullveldi meðan á aðildarviðræðum stæði. Viðræður eru undirbúningsfasi án bindandi skuldbindinga. Hins vegar væri framgangur viðræðnanna háður því að viðmið væru uppfyllt. Þau gætu falið í sér kröfur um að Ísland kæmi á tilteknum löggjafar- og stofnanabreytingum áður en hægt væri að loka einstökum viðræðuköflum, þar á meðal að sýna fram á árangursríka innleiðingu þar sem þess gerðist þörf.“

Svo segir í svari Evrópusambandsins og áfram: „Fullar aðildarskyldur, þar á meðal flutningur réttinda og skyldna samkvæmt sáttmálum Evrópusambandsins, myndu aðeins taka gildi þegar aðildarsamningurinn hefði verið fullgiltur sem venjulega krefst samþykkis í þjóðaratkvæðagreiðslu og samþykkis þingsins. Ísland gæti einnig kosið að innleiða ákveðna þætti regluverks sambandsins fyrir aðild til þess að greiða fyrir viðræðunum, uppfylla samningsviðmið og undirbúa mögulega framtíðaraðild.“ Deginum ljósara er þannig, sem fyrr segir, að þetta er alls ekki í samræmi við orð Kos í fréttum Sýnar.

Fram kemur á vefsíðu upplýsingaþjónustunnar að almennt sé fyrirspurnum svarað innan þriggja virkra daga. Tekið geti lengri tíma að svara flóknari fyrirspurnum. Ég sendi aðra fyrirspurn hliðstæðs efnis í síðasta mánuði sem svarað var innan þess tímaramma. Ljóst er af svarinu að það lá fyrir áður en þjóðaratkvæðið fór fram á laugardaginn enda talað um fyrirvara um niðurstöðu þess. Við bætist sú staðreynd að svarið skilaði sér snemma í gærmorgun skömmu eftir opnun skrifstofunnar. Ljóst má þannig vera að svarið hafi viljandi ekki verið sent fyrr en eftir að þjóðaratkvæðið hafði farið fram.

Frá pólitískum sjónarhóli er skiljanlegt að ekki hafi verið vilji til þess af hálfu Evrópusambandsins að senda mér svarið fyrir en við Íslendingar hefðum greitt atkvæði í þjóðaratkvæðinu enda sem fyrr segir þvert á ummæli Kos í viðtali Sýnar. Með öðrum orðum má ljóst vera að markmiðið með svörum stækkunarráðherra Evrópusambandsins í fréttinni hafi verið að afvegaleiða íslenzka kjósendur. Skömmu áður hafði fréttavefurinn Euractiv greint frá því að háttsettir embættismenn sambandsins væru að leita leiða til að aðstoða já-hliðina í kosningabaráttunni. Skoða verður svör Kos í viðtalinu í því ljósi.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Birtist áður í Morgunblaðinu 1. september 2026)

(Ljósmynd: Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Marta Kos, stækkunarráðherra Evrópusambandsins. Eigandi: © European Union, 2025, licensed under CC BY 4.0)