„Ef þetta verður já verður þetta margra ára vegferð. Það verður fleiri en ein ríkisstjórn með þetta í fanginu,“ sagði Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra við fjölmiðla á kosninganóttina þegar enn var útlit fyrir að samþykkt yrði að hefja umsóknarferli að Evrópusambandinu. Þetta sagði hún hins vegar ekki fyrir þjóðaratkvæðið og gerði eins enga athugasemd við það þegar Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra hélt því fram að í mesta lagi yrði um að ræða tvö ár.
Vitanlega vaknar sú spurning hvers vegna Kristrún nefndi þetta ekki fyrr en kjósendur höfðu greitt atkvæði og kjörstöðum verið lokað. Nærtækasta skýringin er auðvitað sú að það hefði ekki þjónað málstað ríkisstjórnarinnar að upplýsa þjóðina um það að um ferli væri að ræða sem tæki mörg ár en ekki einungis í mesta lagi tvö eins og Þorgerður hélt ítrekað á lofti í kosningabaráttunni. Það var hins vegar vitanlega óhætt eftir að ekki var lengur hægt að greiða atkvæði.
Mörgu var haldið fram í kosningabaráttunni af hálfu ráðherra ríkisstjórnarinnar sem var í engu samræmi við veruleikann. Til að mynda að einungis væri um að ræða viðræður við Evrópusambandið en ekki umsóknarferli sem gengi út á aðlögun þvert á gögn sambandsins sjálfs og reynslu ríkja sem sótt hafa um inngöngu í það. Sömuleiðis að koma myndi fram í mögulegum samningi við Evrópusambandið hvaða vextir og verðbólga yrði hér á landi í framtíðinni ef Ísland gengi í sambandið.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, og Ursula von der Leyen, forsætisráðherra Evrópusambandsins (forseti framkvæmdastjórnar þess). Eigandi: © European Union, 2025, CC BY 4.0)
