„Framsókn hafnar afdráttarlaust innleiðingu bókunar 35 þar sem hún myndi veikja stöðu íslensks löggjafarvalds og skerða fullveldi þjóðarinnar,“ segir í ályktun flokksþings Framsóknarflokksins, sem fram fór um miðjan febrúar síðastliðinn, um utanríkismál. Var þar vísað til frumvarps Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra um bókunina sem fæli í sér að innleitt regluverk frá Evrópusambandinu í gegnum EES-samninginn gengi framar íslenzkum lögum.
„Ég hef margoft sagt það og í umræðum hér í þinginu að við vorum að leita leiða í ríkisstjórninni alveg allt frá 2017 til 2024 með mismunandi hætti. Fyrst reyndum við að taka til varna. Síðan þegar Hæstaréttardómurinn lá fyrir reyndum við að finna ásættanlegustu leiðina og höfum þar af leiðandi talað fyrir því til þess að styrkja samninginn,“ sagði Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokksins og fyrrverandi formaður hans, hins vegar í samtali við mbl.is í gær.
Sigurður lét ummælin falla eftir að hafa verið spurður hvort Framsóknarflokkurinn myndi styðja bókun 35 en Þorgerður hefur boðað nýtt frumvarp um hana í haust. Verið væri að reyna að styrkja EES-samninginn og hluti af því væri að engin óútkljáð mál væru vegna hans. Bókunin væri það sannarlega. Þingmenn eru vissulega aðeins bundnir af sannfæringu sinni samkvæmt stjórnarskránni en Sigurður virðist telja sig enn tala fyrir hönd flokksins og það þvert á stefnu hans.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokksins. Eigandi: Skjáskot af Ruv.is)
