Fylgi Sjálfstæðisflokksins mælist 26,8% samkvæmt nýrri skoðanakönnun Gallups og hefur ekki verið meira í könnunum fyrirtækisins síðan í júní 2017 eða í rúm níu ár. Fylgið hefur aukizt jafnt og þétt á undanförnum mánuðum. Fengi flokkurinn þetta fylgi í þingkosningum myndi það skila honum 19 þingmönnum miðað við 14 eins og staðan er í dag.
Miðflokkurinn bætir einnig við sig fylgi miðað við síðustu könnun Gallups og mælist með 15,6% sem myndi skila honum 11 þingmönnum miðað við átta í dag. Þá fengi þriðji stjórnarandstöðuflokkurinn, Framsóknarflokkurinn, 5,5% og fjóra þingmenn. Saman fengi núverandi stjórnarandstaða 34 þingmenn og þar með þingmeirihluta miðað við könnunina.
Samfylkingin mælist með mest fylgi eða 29,6% sem skila myndi flokknum 22 þingmönnum en hefur 15 í dag. Viðreisn tapar hins vegar töluverðu fylgi og mælist með 9,7% og sjö þingmenn miðað við 11 í dag. Þá mælist Flokkur fólksins, þriðji stjórnarflokkurinn, með 4,8% sem þýddi að hann myndi missa alla níu þingmenn sína og lenda utan þings.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins. Eigandi: Sjálfstæðisflokkurinn)
