Hvers vegna var ekki brugðizt við fyrr?

„Við munum funda í þjóðhagsráði núna á fimmtudaginn, þar sem við munum fara aðeins yfir stöðu mála og kynna hvað gæti verið í boði til þess að liðka fyrir að ekki verði sagt upp samningum,“ sagði Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra við Vísi á þriðjudaginn. Fyrir hefur legið í allt sumar að forsenduákvæði kjarasamninga myndu að öllum líkindum virkjast í ágúst vegna verðbólgunnar. Fyrst núna, þegar forsendur eru brosnar, hyggst ríkisstjórn sýna einhver viðbrögð.

Kristrún sagði við Vísi að ríkisstjórnin hefði verið í samskiptum við aðila vinnumarkaðarins í allt sumar. Verkalýðshreyfingin hefur hins vegar þvert á móti gagnrýnt samskipta- og aðgerðaleysi ráðamanna. „Auðvitað vil ég leggja áherslu á það að við getum komið með ákveðin úrræði inn. Það er síðan í höndum stakra stéttarfélaga hvort þau ákveði að rifta þessum samningum eða ekki. En ég ætla að leyfa mér að vera vongóð um að við finnum einhverja ákjósanlega lendingu.“

Með öðrum orðum á fyrst núna að bregðast við. Þegar barnið er dottið í brunninn – og þjóðaratkvæðið um Evrópusambandið er að baki. Margt bendir enda til þess að kosningin hafi haft veruleg áhrif í þeim efnum. Eins og til dæmis verkalýðshreyfingin hefur gagnrýnt harðlega hafa stjórnvöld þvert á móti beinlínis stuðlað að aukinni verðbólgu á árinu með miklum gjaldskrár- og skattahækkunum. Minni verðbólga hefði jú ekki aukið áhuga fólks á því að ganga í sambandið.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, og Ursula von der Leyen, forsætisráðherra Evrópusambandsins. Eigandi: © European Union, 2025, CC BY 4.0)