„Kosningunum var stolið… ég meina keyptar“

„Margt er hægt að kaupa fyrir peninga: Flottan bíl, nuddpott, þjóðaratkvæðagreiðslu,“ ritaði Sif Sigmarsdóttir rithöfundur í pistli á Vísi 3. september. Hliðstæð sjónarmið hafa verið viðruð á undanförnum dögum af sumum í röðum þeirra sem fengu ekki þá niðurstöðu í þjóðaratkvæðinu um Evrópusambandið í lok síðasta mánaðar sem þeir vonuðust eftir.

Mjög lítill munur ef einhver er vitanlega á þeim málflutningi og að halda því fram að kosningunum hafi verið stolið líkt og til dæmis núverandi forseti Bandaríkjanna hefur iðulega gert vegna forsetakosninganna þar í landi árið 2020. Það skorti þess utan ekki fjársterka aðila að baki já-hreyfingunni og að forystumenn hennar væru sterkefnaðir og ríflega það.

Málið snýst enda ekki um það hversu miklum fjármunum var varið í kosningabaráttu hvorrar fylkingar. Þetta snýst um það að já-hreyfingin varð undir. Þá skapast iðulega þörf fyrir hentugar skýringar á óförunum. Eitthvað sem kalli ekki á það að horfa inn á við. Líta í eigin barm. Þá er þægilegt að kenna öðrum um. Þeir hafi haft rangt við. Einhvern veginn.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Sif Sigmarsdóttir rithöfundur. Eigandi: Skjáskot af Ruv.is)