Hægt að segja sannleikann eftir kosningar

Marta Kos, stækkunarráðherra Evrópusambandsins, staðfesti í samtali við fjölmiðla í Dublin á Írlandi í gær að sambandið liti svo á að þjóðaratkvæðið hér á landi um síðustu helgi hefði í raun snúizt um það að hvort ganga ætti í sambandið. Þar bar hún saman stuðning við inngöngu í Evrópusambandið í skoðanakönnun frá árinu 2010 og þá sem sögðu já í þjóðaratkvæðinu sem rök fyrir því að stuðningur við inngöngu í sambandið hefði aukizt. Hægt er að segja satt eftir kosningar.

Væntanlega segir það sig sjálft að engar forsendur væru fyrir því að bera þetta tvennt saman ef ekki væri litið svo á að um sambærilega hluti væri að ræða. Margoft var bent á það í kosningabaráttunni af þeim, sem vildu ekki hefja inngöngu í Evrópusambandið, að þjóðaratkvæðið snerist ekki um einfaldar viðræður heldur væri um að ræða umsóknarferli sem hefði það markmið að Ísland gengi í sambandið og vísað í gögn þess sjálfs. Því var algerlega hafnað af já-hliðinni.

Vegferð ríkisstjórnarinnar í þessum efnum hófst einmitt á hliðstæðum forsendum. Fyrir síðustu þingkosningar talaði enginn flokkur fyrir því að innganga í Evrópusambandið yrði sett á dagskrá að þeim loknum. Ekki einu sinni Viðreisn. Þjóðaratkvæði um málið var aldrei þessu vant ekki í kosningastefnu flokksins og frambjóðendur hans slógu í og úr spurðir af hvort það yrði forsenda stjórnarsamstarfs. Eftir kosningarnar reyndist síðan um að ræða algert skilyrði í þeim efnum.

Fyrir þessu er einföld ástæða. Viðreisn vissi að áherzla á þjóðaratkvæði um Evrópusambandið væri ekki ávísun á atkvæði. Sumarið 2024 gerði Maskína könnun fyrir Evrópuhreyfinguna þess efnis. Niðurstöðurnar voru aldrei birtar. Það næsta sem gerðist var að flokkurinn lagði aldrei þessu vant ekki áherzlu á málið í kosningunum. Tal um að ríkisstjórnin hafi einungis verið að bregðast við ósk almennings um að kjósa um málið er vitanlega í engu samræmi við veruleikann.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Marta Kos, stækkunarráðherra Evrópusambandsins. Eigandi: © European Union, 2025, licensed under CC BY 4.0)