Formaður utanríkismálanefndar Alþingis, Pawel Bartoszek, lýsti þeirri skoðun sinni í Dagmálum fyrir helgi að bæði kostir og ókostir fylgdu því að draga umsókn Íslands um inngöngu í Evrópusambandið til baka í kjölfar þjóðaratkvæðisins.
Kosturinn væri sá að hægt yrði að hreinsa borðið þannig að ekki þyrfti að velta því fyrir sér hvort einhverjir gamlir fyrirvarar og samningsmarkmið frá tíð fyrri ríkisstjórna væru enn í gildi ef farið yrði af stað með málið aftur í framtíðinni.
„Ókosturinn er auðvitað sá að það myndi þá hafa það í för með sér að hvert einasta aðildarríki Evrópusambandsins þá myndi þá hafa neitunarvald um það hvort við yrðum tekin yfir á lista yfir umsóknarríki,“ sagði Pawel varðandi ókostina.
Hins vegar er Ísland ekki umsóknarríki (candidate country). Fram kom í bréfi þáverandi utanríkisráðherra, Gunnars Braga Sveinssonar, til Evrópusambandsins 2015 að landið væri ekki lengur umsóknarríki og var það tekið af listanum.
Fyrir vikið þyrfti áðurnefnt samþykki ríkja Evrópusambandsins hvort sem umsóknin yrði dregin til baka eða ekki. Til þess að ríki fái stöðu umsóknarríkis þarf enda samþykki þeirra sem fyrr segir. Þessi röksemd stenzt því ekki skoðun.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar. Eigandi: Skjáskot úr Dagmálum)
