Viðbrögð harðra Evrópusambandssinna við niðurstöðu þjóðaratkvæðisins um Evrópusambandið um síðustu helgi verða sífellt áhugaverðari. Frá þeim sem vilja sniðganga íslenzkar landbúnaðarvörur yfir í þá sem vilja að ríkisstjórnin hafi niðurstöðuna að engu og fari í aðildarviðræður við sambandið þrátt fyrir að því hafi verið hafnað. Nú síðast reyndi Dagbjört Hákonardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, að draga upp þá mynd í hlaðvarpinu Ein pæling í dag að nei-hliðin hefði líka beðið ósigur.
Fullyrti Dagbjört þannig að nei-hliðin hefði reiknað með miklu stærri sigri en raunin hefði orðið. Þegar hlaðvarpsstjórnandinn Þórarinn Hjartarson lýsti efasemdum sínum um að hægt væri að halda því fram færði hún engin rök fyrir því og lét nægja að segja einungis: „Ég get sagt þér það að ég skal fara upp á þessa hæð og drepast á henni.“ Fullyrti Dagbjört enn fremur að báðar hliðar væru í „pínulitlu sjokki“ eftir kosninguna þegar Þórarinn sagði þetta eiga við um já-hliðina en ekki nei-hliðina.
Skilaboðin voru sem sagt þau að úrslit þjóðaratkvæðisins hefðu í raun einnig verið ósigur fyrir nei-hliðina á þeim forsendum að hún hefði reiknað með stærri sigri. Sem engin rök voru þó færð fyrir. Ég veit ekki um neinn nei-megin í kosningabaráttunni sem er í sjokki vegna sigursins. Ekki einu sinni pínulitlu. Hins vegar eru margir enn að jafna sig vegna þess að þeir óttuðust þvert á móti ósigur þar sem kannanir bentu lengst af til sigurs já-hliðarinnar. En vonandi fer Dagbjört ekki upp á þessa hæð 🙂
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Dagbjört Hákonardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar. Eigandi: Skjáskot)
