Forystumenn Evrópusambandsins kunna Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra litlar þakkir fyrir að hafa skapað miklar væntingar á meðal þeirra um að samþykkt yrði í þjóðaratkvæðinu um síðustu helgi að hefja inngöngu Íslands í sambandið. Til stóð að jákvæð niðurstaða í atkvæðagreiðslunni yrði eitt af lykilatriðunum í stefnuræðu Ursulu von der Leyen, forsætisráðherra Evrópusambandsins, 16. september en drög að ræðunni hafa nú verið endurskrifuð.
Væntingar voru miklar innan Evrópusambandsins lengi vel um að Ísland ætti eftir að hefja á nú umsóknarferli að sambandinu og í framhaldinu ganga þar inn enda hafði Þorgerður kynt undir þeim. Þegar nær dró þjóðaratkvæðinu runnu hins vegar tvær grímur á forystumenn Evrópusambandsins í vaxandi mæli en þá var einfaldlega ekki aftur snúið. Leitað var leiða til þess að hjálpa já-hliðinni hér á landi. Meðal annars með heimsóknum ráðherra frá ríkjum innan sambandsins.
Viðtal Sýnar við Mörtu Kos, stækkunarráðherra Evrópusambandsins, viku fyrir þjóðaratkvæðið, þar sem hún svaraði því játandi að engar lagabreytingar yrðu hér á landi samhliða viðræðum um inngöngu í sambandið, var liður í þessari aðstoð við já-hliðina. Svarið gekk þvert á gögn Evrópusambandsins í þessum efnum. Þá var viðurkennt í svari sambandsins við fyrirspurn frá mér, sem samið var í samráði við ráðuneyti hennar, að til slíkra stofnana- og lagabreytinga gæti komið.
Tengslin við Bandaríkin hafa á sama tíma ekki verið ræktuð og Þorgerður hefur þess utan kynt undir ótta í garð þeirra í því skyni að reyna að auka stuðning hér á landi við inngöngu í Evrópusambandið. Við Íslendingar sitjum fyrir vikið uppi með utanríkisráðherra sem hefur skapað sér vantraust bæði vestanhafs og austanhafs. Það á þó ekki einungis við um Þorgerði enda hefur hún ekki staðið að málum með þessum hætti í tómarúmi. Ríkisstjórnin öll er ábyrg í þeim efnum.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Kristrún Frostadóttir forsærisráðherra, Ursula von der Leyen, forsætisráðherra Evrópusambandsins, og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. Eigandi: © European Union, 2025, licensed under CC BY 4.0)
