„Hafi stefnu Framsóknar að leiðarljósi“

„Mikilvægt er að samræmi sé milli samþykktrar stefnu [Framsóknar]flokksins og afstöðu hans á Alþingi. Hvetur því Ung Framsókn í Reykjavík þingflokk Framsóknar til þess að hafa stefnu flokksins að leiðarljósi þegar málið kemur að nýju til kasta Alþingis,“ segir í ályktun sem ungliðahreyfing Framsóknarflokksins sendi frá sér 3. september með vísan til fyrirhugaðs frumvarps Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra um bókun 35 við EES-samninginn.

Minnt er á það í ályktuninni að Framsóknarflokkurinn hefði hafnað frumvarpi utanríkisráðherra á flokksþingi hans fyrr á árinu en í ályktun þess um utanríkismál segir: „Framsókn hafnar afdráttarlaust innleiðingu bókunar 35 þar sem hún myndi veikja stöðu íslensks löggjafarvalds og skerða fullveldi þjóðarinnar.“ Þá hefur formaður flokksins, Lilja Alfreðsdóttir, sem tók við formennsku á flokksþinginu, að sama skapi talað með afgerandi hætti gegn samþykkt frumvarpsins.

Tilefni ályktunar ungliðanna leynir sér ekki. Tveimur dögum áður en ályktun þeirra var send út hafði Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokksins, fulltrúi flokksins í utanríkismálanefnd Alþingis og fyrrverandi formaður hans, spurður af fjölmiðlum um afstöðu Framsóknar til málsins eftir fund í nefndinni þar sem málið kom til umræðu, talað á þá leið að flokkurinn kynni að styðja samþykkt frumvarpsins. Hafa ummælin fallið í grýttan farveg innan Framsóknar.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokksins. Eigandi: Skjáskot af Ruv.is)