Við Íslendingar eigum samkvæmt EES-samningnum að hafa neitunarvald gagnvart regluverki frá Evrópusambandinu sem fellur undir samninginn ef við teljum að það fari gegn íslenzkum hagsmunum. Neitunarvaldið var ein af helztu forsendum þess að þáverandi stjórnvöld töldu ásættanlegt að gerast aðilar að EES-samningnum og að aðildin að honum teldist standast stjórnarskrá lýðveldisins. Hins vegar hefur því aldrei verið beitt þar sem ekki hefur verið talið hættandi á það.
Hafa ber í huga í þessu sambandi að ekki er um að ræða hefðbundið neitunarvald líkt og í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna þar sem beiting þess stöðvar viðkomandi mál. Kæmi til þess að neitunarvaldi EES-samningsins yrði beitt færi málið í ákveðinn farveg samkvæmt samningnum þar sem reynt væri að finna pólitíska lausn á því. Ekki þó hvort umrætt regluverk yrði tekið upp heldur einungis hvernig. Tækist ekki að finna lausn innan tiltekins tíma félli allur umræddur málaflokkur úr gildi.
Hins vegar ekki nóg að sá málaflokkur sem umrætt regluverk heyrði undir félli úr gildi með beitingu neitunarvaldsins að mati Evrópusambandsins heldur hefur sambandið hreinlega gefið það út að kæmi til þess að eitthvert aðildarríkja EES-samningsins utan þess (öll ríki sambandsins eru einnig aðilar að samningnum), það er að segja Ísland, Noregur eða Lichtenstein, beitti neitunarvaldinu þyrfti að tryggja að beiting þess hefði örugglega neikvæðar afleiðingar fyrir hagsmuni þess ríkis.
„Til að sporna á áhrifaríkan hátt við tilraunum samstarfsaðila innan EFTA-stoðar EES til að innleiða ESB-löggjöf, sem varðar EES-samninginn, með sértækum hætti, ætti ESB að sjá til þess að sá hluti viðauka samningsins, sem að lokum yrði felldur úr gildi, hefði neikvæð áhrif á hagsmuni samstarfsaðilans – fremur en að aðeins væri fallið frá þeim hlutum samningsins sem aðilinn, sem brýtur gegn honum, kýs að hunza,“ segir þannig í skjali á vegum ríkisstjórnar sambandsins frá 2012.
Vísað var til skjalsins af Skúla Magnússyni, núverandi hæstaréttardómara, á fundi utanríkismálanefndar Alþingis 29. apríl 2019 þar sem þriðji orkupakki Evrópusambandsins var til umfjöllunar. Sagði hann markmið sambandsins að það hefði einhverjar neikvæðar afleiðingar fyrir viðkomandi aðildarríki EES-samningsins ef þjóðþing þess nýtti heimild EES-samningsins og hafnaði því að aflétta stjórnskipulegum fyrirvara vegna tiltekins regluverks. Það er að segja ef það beitti neitunarvaldinu.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Höfuðstöðvar ríkisstjórnar Evrópusambandsins. Eigandi: © European Union, 2025, CC BY 4.0)
