Telja Kristrúnu ábyrga fyrir óförunum

Margir harðir Evrópusambandssinnar hugsa Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra og formanni Samfylkingarinnar, þegjandi þörfina í kjölfar niðurstöðu þjóðaratkvæðisins um Evrópusambandið fyrir tveimur vikum. Einkum innan Viðreisnar en einnig í hennar eigin flokki sem og utan flokkanna. Mikil vonbrigði þeirra með niðurstöðuna hafa birzt með ýmsum hætti að undanförnu og ýmsir sökudólgar verið fundnir í þeim efnum. Þar á meðal ekki sízt Kristrún.

Kristrún beitti sér lengst af lítið sem ekkert í kosningabaráttunni í aðdraganda þjóðaratkvæðisins. Fyrir því var ástæða. Hún hafði enga trú á málinu. Kristrún lét þó að lokum undan þrýstingnum og samþykkti að flýta þjóðaratkvæðinu að vilja Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra og formanns Viðreisnar, gegn því að hún myndi ekki þurfa að beita sér. Þorgerður féllst á þetta enda taldi hún að yrði atkvæðagreiðslunni flýtt yrði sigur í henni ágætlega vís.

Vonir Þorgerðar og margra annarra harðra Evrópusambandssinna fóru þó jafnt og þétt minnkandi eftir því sem nær dró þjóðaratkvæðinu og jókst þá þrýstingur á Kristrúnu að beita sér. Fór svo að lokum að Kristrún fór meðal annars í ferð um landið á þeim forsendum að hún ætlaði að hlusta á landsmenn. Sú skoðun er hins vegar útbreidd í röðum Evrópusambandssinna að hún hefði þurft að beita sér miklu meira sem aftur hefði mögulega getað riðið baggamuninn.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra. Eigandi: Skjáskot af Ruv.is)