Mikið í mun að missa ekki takið á Íslandi

Meðan Ísland gengur ekki í Evrópusambandið er ráðamönnum í Brussel mikið í mun að missa ekki það tak sem þeir hafa á landinu í gegnum aðild þess að EES-samningnum. Hafa má í huga í þeim efnum að frá sjónarhóli sambandsins var samningurinn hugsaður sem anddyri að inngöngu í það eins og komið hefur fram í máli ráðamanna innan sambandsins.

Til að mynda kom fram í máli Tilmans Kuban, sem situr á sambandsþingi Þýzkalands fyrir Kristilega demókrata, á sæti í utanríkismálanefnd þingsins og fer fyrir Evrópumálum innan flokks síns sem leiðir ríkisstjórn landsins, í samtali við Ríkisútvarpið í apríl að EES-samningurinn væri að hluta til hugsaður sem andyri að Evrópusambandinu.

Fullyrðing Eiríks Bergmanns, prófessors í stjórnmálafræði, í samtali við Vísi í gær um að EES-samningurinn gæti hreinlega raknað upp verði bókun 35 við hann ekki innleidd með þeim hætti sem til stendur af ríkisstjórninni, að innleitt regluverk frá Evrópusambandinu í gegnum hann gangi framar innlendum lögum, stenzt þannig ekki pólitíska skoðun.

Hitt er svo annað mál að viðbúið er að Evrópusambandið bregðist við niðurstöðu þjóðaratkvæðisins með því að gera auknar kröfur til Íslands á grundvelli EES-samningsins og umfram það sem er í raun hægt að ætlazt til af landinu. Eins og varðandi bókun 35 sem fer þvert á þær forsendur sem lágu til grundvallar aðild Íslands að samningnum í byrjun.

Meðal þess sem fram kom hjá Kuban í samtalinu við Ríkisútvarpið í apríl var að Íslendingar gætu þannig ekki aðeins notið kostanna við Evrópusambandið í gegnum EES-samninginn og að aðildin að honum mætti ekki koma í veg fyrir inngöngu í það. „Hann má ekki verða svo aðlaðandi að það sé engin ástæða lengur til að ganga í Evrópusambandið.“

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Höfuðstöðvar ríkisstjórnar Evrópusambandsins. Eigandi: © European Union, 2025, CC BY 4.0)