Meirihlutinn ræður í lýðræðislegum kosningum

Vorið 2003 fór fram þjóðaratkvæði á Möltu um það hvort eyríkið skyldi ganga í Evrópusambandið. Var það samþykkt með 53,7% atkvæða en 46,3% voru því andvíg. Malta varð í kjölfarið formlega hluti af sambandinu 1. maí árið eftir.

Haustið 1994 var kosið í þjóðaratkvæðagreiðslu í Svíþjóð um það hvort landið ætti að ganga í Evrópusambandið. Var inngangan samþykkt með 52,7% atkvæða en 47,3% lögðust gegn því. Gekk Svíþjóð í sambandið 1. janúar 1995.

Haustið 1992 greiddu kjósendur í Frakklandi atkvæði um Maastricht-sáttmála Evrópusambandsins þar sem 51% studdu samþykkt sáttmálans en 49% höfnuðu því. Frakkland varð í kjölfar atkvæðagreiðslunnar aðili að sáttmálanum.

Sumarið 2026 var hafnað í þjóðaratkvæði á Íslandi að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið með 52,8% atkvæða gegn 47,2%. Harðir Evrópusambandssinnar hafa sagt að taka þurfi tillit til þeirra sem urðu undir vegna lítils munar.

Hins vegar töldu hérlendir og erlendir Evrópusambandssinnar enga ástæðu til að taka tillit til þeirra sem lutu í lægra haldi í þjóðaratkvæðunum á Möltu, í Svíþjóð og Frakklandi. Enda ræður jú meirihlutinn í lýðræðislegum kosningum.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur