Hvorki Grænland né Færeyjar á leið í ESB

Formaður landsstjórnar Grænlands, Jens-Frederik Nielsen, sagði við fjölmiðla fyrr í vikunni að engin áform væru um það af hálfu stjórnar hans að endurskoða þá ákvörðun grænlenzkra kjósenda árið 1985 að segja skilið við Efnahagsbandalag Evrópu, forvera Evrópusambandsins. Vilji væri fyrir auknu samstarfi við sambandið en innganga væri ekki á dagskrá.

Forsætisráðherra Evrópusambandsins, Ursula von der Leyen, var í heimsókn á Grænlandi í vikunni í tengslum við ákvörðun sambandsins um að verja 200 milljónum evra í uppbyggingarverkefni í landinu. Ummæli Nielsens féllu af því tilefni. Fagnaði hann áhuga Evrópusambandsins á því að fjárfesta á Grænlandi en áréttaði að innganga í það stæði ekki til.

Fyrr á árinu lýsti ný landsstjórn Færeyja yfir áhuga á aðild að Fríverzlunarsamtökum Evrópu (EFTA), sem Ísland er meðal annars aðili að, og að gera fríverzlunarsamning við Evrópusambandið. Sem sagt að standa áfram utan þess. Til þess að ganga í sambandið þyrftu löndin tvö fyrst að verða fullvalda ríki. En innganga í það stendur sem fyrr segir ekki til.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Jens-Frederik Nielsen, formaður landsstjórnar Grænlands. Eigandi: Christian Ursilva – Attribution 4.0 International)