Snýst vitanlega um hagsmuni Bandaríkjanna

Haft var eftir Rasmus Gjedssø Bertelsen, prófessor í norðurslóðafræðum við Háskólann í Tromsö í Noregi, í Speglinum í dag að varnarskuldbindingar Bandaríkjanna gagnvart Íslandi snerust um bandaríska hagsmuni en ekki íslenzka. „Við erum með, að því er mér finnst, einhverja skrítna hugmynd um að Bandaríkin hafi verið að verja Evrópu vegna okkar og til þess að vera góð við okkur. Við höfum ekki skilið að Bandaríkin eru bara í Evrópu vegna eigin hagsmuna,“ sagði hann.

Vitanlega hafa varnarskuldbindingar Bandaríkjanna gagnvart Evrópuríkjum fyrst og fremst snúizt um bandaríska hagsmuni. En ekki hvað? Rétt eins og öll ríki NATO eru í bandalaginu vegna eigin hagsmuna. Bandaríkin hafa hag af því að Ísland sé varið vegna landfræðilegrar legu landsins. Enda sagðist Bertelsen telja ljóst að Bandaríkin myndu aldrei sætta sig við það að annað stórveldi hefði aðsetur á Íslandi. Því væri alls engin spurning að þau mynda tryggja varnir Íslands.

Varnarsamningur Bandaríkjanna og Íslands mun einmitt að öllum líkindum halda vegna þess að það er ekki í þágu bandarískra hagsmuna að landið sé óvarið. Það er hluti af heimavörum Bandaríkjanna að varnir Íslands séu tryggðar og það af þeim. Hagmunir landanna fara saman. Óháð NATO-aðild þeirra. Hafa má í huga í því sambandi að Bandaríkin eru eina vestræna ríkið sem hefur burði til þess að verja bæði sig og aðra og verður í það minnsta í fyrirsjáanlegri framtíð.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Bandarísk flotadeild. Eigandi: Bandaríski sjóherinn)